Sjálfstæðismenn gagnrýna seinagang/Allt gert til að,gera ekki það sem þarf !!!!

Sjálfstæðismenn gagnrýna seinagang
Innlent | mbl.is | 22.10.2010 | 12:12

Ráðhús Reykjavíkur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna harðlega hversu seint vinnu við fjárhagsáætlanagerð borgarinnar miðar. Þeir segja að úthlutun á fjárhagsramma einstakra sviða hafi fyrst verið afgreidd í borgarráði í morgun, tæpum tveimur mánuðum síðar en gert hafi verið ráð fyrir.Þrátt fyrir hversu langan tíma þessa vinna hefur tekið, virðist alla forgangsröðun skorta í fjárhagsáætlanagerðina og ónógt samráð, bæði innan borgarstjórnar og við starfsfólk, veldur því að erfitt er að greina nokkrar pólitískar línur í þeirri vinnu sem nú hefur loks verið vísað til fagsviðanna,“ segir í tilkynningu.  

Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, að samkvæmt þeirri rammaúthlutun sem nú liggi fyrir sé stefnt að meiri hagræðingu á menntasviði og íþrótta- og tómstundarsviðin en af menningar- og ferðamálasviði og einnig meiri en af miðlægri stjórnsýslu. 

Hanna Birna undrast slíka forgangsröðun og telur hana í ósamræmi við brýnustu verkefnin í borginni.

„Ástæðan fyrir góðum árangri í fjárhagsáætlanagerð Reykjavíkurborgar á undanförnum árum er einföld.  Borgarstjórn var einróma um áherslur í þágu velferðar og barna, auk þess sem meginlínurnar um skatta, gjaldskrár og grunnþjónustu voru alveg skýrar. Forgangsröðunin var einnig öllum ljós og endurspeglaðist í því að sparnaður var mestur í miðlægri stjórnsýslu en minnstur þar sem börn, menntun og velferð voru í húfi,“ segir hún í tilkynningu.
 
Hanna Birna bendir jafnframt á í tilkynningu að allt frá nýr meirihluti hafi verið myndaður hafi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvatt til þess að á þessu brýna verkefni verði tekið af alvöru sem allra fyrst.  Það hafi ekki verið gert, meirihlutinn beri stöðugt við reynsluleysi og þörfin fyrir meiri tíma, sem nú sé að líða og því miður endurspegli þau gögn sem nú liggja fyrir að þetta verði ekki fjárhagsáætlun fyrir fólkið, heldur fyrir kerfið þar sem meirihluti Besti flokkurinn og Samfylkingin útiloki hvorki hækkun útsvars- né fasteignaskatta og virðist í raun gera ráð fyrir þeim.

„Slíkar hækkanir á almenning eru algert óráð á tímum þar sem almenningur einfaldlega getur ekki tekið við meiri álögum" segir Hanna Birna og ítrekar mikilvægi þess að borgin haldi áfram að standa vörð um það sem mestu skiptir og leiti allra leiða áður en vandanum er velt yfir á fólkið í borginni./////það er svo að þessi meirihluti ætalar að bylta öllu og gera bar það sem þeim sýnist ekki það sem fólkið i borginni f vill allt annað er gert,sérstaklega allt til bölvinar sáalfstæisflokknum ,ekki nein samvinna og unnið að malum sem ekki eru á dagskra´/.þetta var þeirra von og vísa aðð gera allt til bölvunar/Halli gamli 


mbl.is Sjálfstæðismenn gagnrýna seinagang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt hjá þér Halli, það er enginn samvinna í gangi. Sjáfstæðisflokkurinn ætti nú að sjá sóma sinn og hætta að bera það í fjölmiðla þegar þeir eru í fýlu og vinna bara með hinum í stað þess að grenja. Löngu kominn tími til.

Kristján (IP-tala skráð) 24.10.2010 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband