Erfiðir tímar en ekki heimsendir/vonandi að þetta hefi áhrif og geri gott???

Erfiðir tímar en ekki heimsendir
Erlent | mbl.is | 30.10.2010 | 21:53

Jon Stewart ávarpaði mannfjöldann.„Við lifum á erfiðum tímum en þetta er ekki heimsendir,“ sagði gamanþáttastjórnandinn Jon Stewart á útifundi í Washington. Gríðarlegur fjöldi fólks mætti á fundinn, en hann taldi sjálfur að á milli 10 milljónir til 6 milljarðar manna hefðu verið á fundinum.

Bandaríkjamenn ganga til kosninga á þriðjudaginn. Almennt er búist við að demókrataflokkur Obama forseta tapi fylgi í kosningunum. Svokölluð Teboðshreyfing hefur sett svip á kosningabaráttuna en hún hefur notað stór orð um Obama og stefnu hans.

Þetta varð m.a til þess að Jon Stewart boðaði til fundar til að koma þeim boðskap á framfæri að heimurinn væri ekki að farast og ekki væri ástæða til að ráðast á pólitíska andstæðing með þeim ofsa sem sumir hefðu gerst sekir um. Sjónvarpsþáttagerðamaðurinn Stephen Colbert stendur einnig að fundinum með skilaboð um að endurvekja geðheilbrigði landsmanna og/eða ótta.

Þátttakan í fundinum hefur komið mörgum á óvart og velta menn nú fyrir sér hvort fundurinn hafi einhver áhrif á niðurstöðu kosninganna.//þetta vonandi kemur Demókrötum til góða og það vel að lofa þeim að halda áfram með verkefnin sem eru að mínu mati nokkuð góð,en kannski ekki til langframa ,það þarf að taka þarna meira á atvinnuleysinu og svo breyta utanríkismalum meira ,þessi stefna þeirra þar er ekki góð,og ber að hætta þessum stríðrekstri alfarið í bili en reka sterka stefnu samt,en vonandi að þetta verið til góðs fyrir kosningar núna /Halli gamli


mbl.is Erfiðir tímar en ekki heimsendir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband