Hugnast betur sameining innan Borgarfjarðar/þetta er það sem mun manni hugnast best/sameina Háskólana þarna!!!

Hugnast betur sameining innan Borgarfjarðar
Innlent | mbl.is | 7.11.2010 | 19:20

Hvanneyri. Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum af framkomnum hugmyndum um innlimun Háskólans á Bifröst í Háskólann í Reykjavík, samkvæmt fréttatilkynningu sem hún hefur sent fjölmiðlum. Sveitarstjórninni hugnast betur sameining eða samstarf við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
Bifröst muni leggjast af og það nám sem eftir stendur mun veikjast verulega. Fjöldi starfa mun flytjast frá Borgarfirði til Reykjavíkur og héraðið mun missa einn af sínum mikilvægustu vinnustöðum.

Menntastofnanir eru ein af grunnstoðum samfélagsins í Borgarbyggð og sveitarfélagið hefur til fjölda ára stutt við bakið á Háskólunum á Bifröst og Hvanneyri með mikilli uppbyggingu á aðstöðu til að þar sé hægt að bjóða upp á fjölskylduvænt umhverfi. 

Sveitarstjórn Borgarbyggðar fagnar framkomnum hugmyndum um aukið samstarf háskólanna í Borgarfjarðarhéraði og mun leggja sitt af mörkum til þess að háskólarnir vaxi og dafni.

Mikill fjöldi námsmanna hefur átt börn í leik- og grunnskólum Borgarbyggðar og ef háskólanám verður flutt úr sveitarfélaginu þá mun það setja starf þessara stofnana í uppnám. Þar fyrir utan hafa nemendur og kennarar við háskólann á Bifröst verið virkir þátttakendur í mannlífi og menningu héraðsins.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að skoðaðir verði vandlega allir möguleikar á að leita annarra leiða til að tryggja öflugt háskólasamfélag í Borgarfirði og bendir sérstaklega á þá möguleika sem felast í aukinni samvinnu háskólanna á Bifröst og Hvanneyri."////svolítið skrítið þetta að ákveða að flytja þessa Háskóla saman,en ekki Bifröst og og Hvanneyri,þetta er ein mesta uppbygging Borgarfjarðar og bókstafalega eyðileggja allt sem hægt er fyrir þetta sveitafélag að mínu mati,það eru eittver maðkur i misuni þarna ekki spurning,ekki bar sparnaður eitthvað sem menn sja´að þetta feigðaraflann þessarar stóru byggingu H.R. er að sliga þetta allt enda alltof mikið i lagst á sinum tíma ,en svon er þetta allt ráðabrugg er í skoðun/Halli gamli


mbl.is Hugnast betur sameining innan Borgarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband