Kosning hófst almennt kl. 9/ en að hugsa okkur um,þetta er bara skípaleikur að mínu álti og peningaplokk !!!

Kosning hófst almennt kl. 9
Innlent | mbl.is | 27.11.2010 | 8:18

Kosið er í Ráðhúsinu í Reykjavík og á fleiri stöðum. Kosning til stjórnlagaþings hófst á flestum kjörstöðum kl. 9 í dag. 522 frambjóðendur eru í kjöri, en kjósendur mega kjósa allt að 25. Á kjörskrá eru 232.374, en þar af eru 7.494 nýir kjósendur sem ekki höfðu rétt til að kjósa til Alþingis vorið 2009.

Kjörstaðir eru almennt opnir frá kl. 9 til kl. 22 í kvöld, en þó hafa einstaka kjörstjórnir ákveðið, eins og þeim er heimilt, að byrja síðar og/eða hætta fyrr. Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í kosningum til stjórnlagaþings og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Upplýsingar um kjörstaði í Reykjavík birtist í dagblöðunum í dag.

Á kjörskrá eru 232.374 kjósendur og er fjöldi karla og kvenna svo til jafn. Konur eru 116.559 en karlar 115.815. Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu um kosninguna, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga. Við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009 voru 227.843 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin síðan þá 4.531 eða 2,0%.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 12.325 eða 5,3% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 2.401 frá síðustu alþingiskosningum eða um 24,2%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 2.130 eða 1,0%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa samkvæmt alþingiskosningalögum en fengu ekki að kjósa til Alþingis 2009 eru 7.494 eða 3,2% af kjósendatölunni.////okkur hjónum er en ekki ljóst hvort við eigum að kjósa ,þetta er svo mikið bruðl,sem við getum ekki breytt!!!! og engi vissa fyrir að þessu verði nokku' gagn,og meira en það ,held að það verið bar alls ekki/en skoðum malið frem eftir dagi ,maður sem var búin að raða í lista ,er efins ennþá,þetta væru þá fyrstu kosningar sem maður tekur ekki þátt i/Halli gamli P/S en kallin Halli skipti um skoðun og fór að kjósa kl 10,30 Ella mín fór einnig,sóttum jólaseríu í leiðnin,Ella jólabarn!!! sami


mbl.is Kosning hófst almennt kl. 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 1045625

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband