Skuldir færðar niður í 110%/svona byrtist þetta okkur, við skoðum þetta betur!!!!

Skuldir færðar niður í 110%
Innlent | mbl.is | 3.12.2010 | 11:23

Mynd 471584 Lántakendum í greiðsluvanda með yfirveðsettar eignir býðst að fá eftirstöðvar skulda færðar niður að 110% af verðmæti fasteignar, samkvæmt samkomulagi um skuldavanda heimilanna sem kynnt var í dag. Ákveðnar takmarkanir eru settar um hve háar fjárhæðir er hægt að afskrifa.
Annars vegar er um að ræða niðurfærslu að hámarki 4 milljónir króna hjá einstaklingi og 7 milljónir króna hjá hjónum/sambýlisfólki og einstæðum foreldrum, sem ætlunin er að afgreiða megi hratt.

Mun ítarlegra mat á eignum og greiðslugetu þarf að koma til ef um meiri niðurfærslu er að ræða, að hámarki 15 milljónir króna hjá einstaklingi og 30 milljónir króna hjá hjónum/sambýlisfólki og einstæðum foreldrum.   

Sértæk skuldaaðlögun

Með breytingum á sértækri skuldaaðlögun mun það úrræði bjóðast fleiri heimilum og bætt samstarf við úrvinnslu mun auka skilvirkni þess. Lántakendum í miklum greiðsluvanda býðst að færa lán sín niður í allt að 70% af verðmæti íbúðarhúsnæðis til samræmis við greiðslugetu. Allt að 30% af virði eignar er þá sett á vaxta- og afborgunarlaust biðlán í 3 ár og skuldir umfram 100% felldar niður.

Auknar vaxtabætur

Rúmlega 2 milljörðum króna verður varið til að viðhalda sérstakri hækkun vaxtabóta sem verið hefur við lýði á árunum 2009 og 2010. Jafnframt verður gerð breyting á almennum vaxtabótum þannig að þær komi í auknum mæli til móts við heimili með þunga skuldabyrði og lágar og miðlungstekjur.  

Ný tímabundin vaxtaniðurgreiðsla

Nýtt tímabundið úrræði verður mótað til að greiða niður vaxtakostnað vegna íbúðahúsnæðis. Niðurgreiðslan er almenn, óháð tekjum, en fellur niður þegar hrein eign skuldara er umfram tiltekin há mörk. Reikna má með að greiðslubyrði heimila muni lækka vegna þessa um allt að 200-300 þúsund kr. á ári. Kostnaðurinn við þetta nýja úrræði verður allt að 6 milljarðar króna á ári og verður hún í gildi árin 2011 og 2012. Ríkisstjórnin mun í samstarfi við aðila samkomulagsins leita leiða til að fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir fjármagni þessi útgjöld.

Sérstakt átak til að ná til heimila í vanskilum

Lánveitendur munu kappkosta að ná til allra heimila sem eru í vanskilum og bjóða þeim viðhlítandi lausnir fyrir 1. maí 2011. Sérstökum samstarfsvettvangi verður komið upp til að flýta afgreiðslu mála og allar aðgerðir verða miðaðar við komast megi hjá uppboðum eigna.

 Félagslegar lausnir í húsnæðismálum

Lánveitendur munu vinna með ríki, sveitarfélögum og félagasamtökum við að koma á fót fjölbreyttum húsnæðislausnum og lífeyrissjóðir munu greiða götu félagslegra úrræða í húsnæðismálum með kaupum á sérstökum flokki íbúðabréfa á lægstu mögulegum vöxtum. Ríkisstjórnin mun ekki lækka framlög til húsaleigubóta á næsta ári, segir í tilkynningu frá ríkisstjórn Íslands og þeim sem koma að gerð samkomulagsins./////þarna er þetta sundurliðað gróft og skoðum við þetta betur,en margt er gott annað gerir litið en svona við fyrstu sýn margt sem við getum unað við annað ekki,þessi ríkisstjórn er ekki nógu hörð við bankana alls ekki,við eigum þarna inni mikið meira sem allt hækkað um og bankarnir tak ekki tillit til nem að hluta,en "mey skal að morgni lofa "segir maltækið og við gerum það og þá getum við haft okkur betur i frammi/Halli gamli


mbl.is Skuldir færðar niður í 110%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband