Fjöldi fulltrúa gæti breyst/þetta á að gera og kjósa svo strax á eftir !!!!!

Fjöldi fulltrúa gæti breyst
Innlent | mbl.is | 2.1.2011 | 19:11

Bæta gæti þurft við stólum í Ráðhúsi Reykjavíkur ef... Verði frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögum samþykkt gæti það þýtt að borgarfulltrúar í Reykjavík yrðu að minnsta kosti 23, en þeir eru í dag 15. Frumvarpsdrögin liggja fyrir á vef innanríkisráðuneytisins, en frestur til að gera athugasemdir er til 23. janúar næstkomandi.

Frumvarpsdrögin eru afrakstur vinnu starfshóps sem skipaður var af Kristjáni L. Möller, þáverandi ráðherra sveitarstjórnarmála, í janúar á síðasta ári. Í frumvarpsdrögunum eru ekki lagðar til „grundvallarbreytingar á sveitarstjórnarlögum,“ eins og það er orðið í skilabréfi starfshópsins. Hins vegar komi þar fyrir mikilvæg nýmæli sem mikilvægt að umræða fari fram um.

„Þau helstu lúta að fjármálum sveitarfélaga, samvinnu sveitarfélaga og almennu stjórnsýslueftirliti með sveitarfélögum, enda er mikil og brýn þörf á að þessum ákvæðum verði breytt. Aðrar mikilvægar tillögur koma hins vegar einnig fram í drögunum, bæði hvað varðar réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna og möguleika íbúanna til aðgangs að upplýsingum um málefni sveitarfélagsins og til að hafa áhrif á stjórnun þeirra.“

Fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa er skilgreindur á ákveðnu bili, og tengdur við íbúafjölda sveitarfélagsins undanfarin átta ár. Þessi viðmið eru eftirfarandi.

1. Þar sem íbúar eru undir 2.000: 5 til 7 aðalmenn.
2. Þar sem íbúar eru 2.000 til 9.999: 7 til 11 aðalmenn.
3. Þar sem íbúar eru 10.000 til 49.999: 11 til 15 aðalmenn.
4. Þar sem íbúar eru 50.000 til 99.999: 15 til 23 aðalmenn.
5. Þar sem íbúar eru 100.000 eða fleiri: 23 til 31 aðalmenn. ////þetta væri bara kjörið og gott,það er bara ágætt ,þá yrði kosið aftur strax ,og það felli þessi óhugnanlegi meirihluti ,ekki spurning,áfarm með þessu leiðréttingu ,og koma svo!!!/Halli gamli


mbl.is Fjöldi fulltrúa gæti breyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband