Styður Icesave að óbreyttu/góð Sunnudagspeki eð hitt þá heldur,skal innaríkisráðherra borga fyrir okkur hin???

Styður Icesave að óbreyttu
Innlent | mbl.is | 23.1.2011 | 12:20

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag, að hann myndi að óbreyttu styðja lagafrumvarp, sem liggur fyrir Alþingi um nýjan Icesave-samning.

Ögmundur sagði, að sá Icesave-samningur, sem nú liggur fyrir þinginu, sé tugum milljarða króna hagstæðari en sá sem Alþingi samþykkti í árslok 2009 en lögum um samningin var síðan hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Ég mun styðja þetta að óbreyttu," sagði Ögmundur. „Jafnvel þótt ég sé mjög ósáttur við þetta mál allt í grunninn, þá held ég að ef það verður yfir okkur næstu misserin og árin muni það rífa okkur á hol. Ég held að það sé komið að því að við reynum að ljúka þessu en ég geri það ekki hvað sem það kostar. Ég ætla að sjá hvaða niðurstaða kemur út úr fjárlaganefnd og mun fara rækilega í málið í þingumræðunni."

Ögmundur var annar af tveimur þingmönnum Vinstri grænna, sem greiddu atkvæði gegn lagafrumvarpi um Icesave í desemberlok 2009.  Lilja Mósesdóttir greiddi einnig atkvæði gegn samningnum.

Ögmundur sagðist í þættinum einnig vera efins um að gera eigi frekari breytingar á stjórnsýslunni og einkum væri hann efins um réttmæti þess að stofna sérstakt atvinnuvegaráðuneyti með samruna landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyta.

Ögmundur sagði að margir innan raða  VG hefðu verið fylgismenn þessara breytinga  en aðrir teldu ekki rétt að draga úr stjórnsýslulegu vægi ráðuneytanna þriggja eins og sakir standa.

Þá sagði Ögmundur, að málið tengdist umsóknarferlinu að Evrópusambandinu. Mestur efasemdarmaður þar væri Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og því vildu margir losna við hann úr ríkisstjórninni.////hvar það sem V.G sjá við  og reyndar Samfylking sja´við að borga þetta sem við eigum ekki að borga,það var verið að sleppa 2 bankastjórum sem þarna eiga mikla sök og svo bara segir ráðherra dómsmála að við eigum að borga þessar  skuldir sem þeir komu okkur i,er þetta að vera V.G og vinur fólksins i landinu maður bara spyr??? Hann er einnig yfirmaður þjóðkirkjunnar skal hann stunda hana?? en það vara svo að maður sjálfur ætlaði i Kirkju i dag en kemst ekki heilsunar vegna því miður!!!/Halli gamli 


mbl.is Styður Icesave að óbreyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband