Eru að leika sér að eldinum/þú ert aðal vandamalið Jóhanna segðu af þér strax ,ekki spurning!!!!

Eru að leika sér að eldinum
Innlent | mbl.is | 29.1.2011 | 13:34

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi í dag. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar að þeir stjórnarliðar sem líta á samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna sem plagg sem ekki þyrfti að taka mark á væru að leika sér að eldinum.

Jóhanna sagði að oft hefði verið tekist á um leiðir í stjórnarsamstarfinu. „Því er hins vegar ekki að leyna að sá óróleiki sem verið hefur í samstarfi við hluta þingflokks Vinstri grænna hefur skaðað stjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. Vegna órofa samstöðu innan Samfylkingarinnar og traust samstarf við formann og stærsta hluta VG hefur þetta hins vegar ekki stöðvað framgang mikilvægra mála ríkisstjórnarinnar.

En það er hættulegur leikur að spila pólitískan einleik á kostnað samstarfsfélag sinna í trausti þess að samstaða annarra og stuðningur við óvinsælar en óhjákvæmilegar ákvarðanir tryggi að upp úr stjórnarsamstarfinu slitni ekki./////þessa blessuð kona Jóhanna ætti að lita sér næst ekki bara kasta þessu á meðstjórnendur símna  sem sjáherslags einræði fer þerna fram hjá henni,það skal, hvergi kvikað d frá villu sínns vegar bar vaða áfarm þá ekkert sé vit i hlutunum ,þetta er ein versta stjórn sem ég hefi lifað með í mín 79 ára  ekki spurning,það á öllu að bylta stóru og smáu og ekkert hugsað um þjóðarhag,bara koma okkur á kaltdann klakann aftur hvað sem það kostar koma okkur i ESB hvað sem  það kostar borga Icesave og gera allt sem landinn vill ekki,það er svo að þótt hælt sé að hafa konu i þessu stól,held ég að stór hluti hljóti að skammast sin fyrir g hana,enda ekki í lagi orðin bara elliær að mínu áliti,hún á eftir ef tími verður til að koma okkur illa !!!Halli gamli

Hættulegur leikur sem gæti endað öðruvísi en menn ætla. Þeir stjórnarliðar sem líta á samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna sem plagg sem ekki þarf að taka mark á eru að leika sér að eldinum.“///


mbl.is Eru að leika sér að eldinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona í ljósi þessarar færslu er ég að velta fyrir mér hvort að síðuritari er í Samfylkingu eða Vg? Hélt að hér ritaði Sjálfstæðismaður! Ef það er rétt held að ég að viðkomandi ætti nú ekki að vera tala um formenn  annarra flokka. Ættir að einbeita þér að Bjarna Ben.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.1.2011 kl. 15:18

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já hér Magnús,þetta var skrítin hugleiðing en skornir Magga eru svona og breytir því ekki: að Halli Gamli er sjálfstæður sjálfstæðismaður/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 29.1.2011 kl. 23:07

3 identicon

Þú vilt kannski taka við og byrja að taka til hér á landinu? Skera niður og hækka skatta? Eða hvernig ætlaru annars að redda peningunum?

Nei, þú vilt kannski frekar rausa hér úr viskubrunni þínum og horfa á fótboltann þess á milli.

Eða, hver ætti annars að taka við ef hún segði af sér? Varla Bjarni Ben?

Tómas Árni (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 01:55

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já Tómas ég,þó aldraður sé gæti það með hjálp góðar manna,og mundi byrja á að lækka skatta og taka þetta af skyldusparnaði sem skatt strax,það er sama og það sem niður var skorið,þetta er tímabundið og það mundi ég siðar bæta,en svo maður tali nú um viðtakendur þá mundu Bjarni Ben og flokkurinn geta tekið við þessu það mikið af nýju fólki sem ekki að að gjalda hinna sem voru á undan,ef ekki við einir þá framsókn,þar eru allir nýjir og við getum ekkert sagt um að þeir geti ekki stjórnað landinu með stæl, og gera allavega okkur lífvænlegt i landinu,en ekki flótta og örbyrgð,koma atvinnulífinu af stað ekki borga Icesave og svo margt fleira/En kveðja samt

Haraldur Haraldsson, 30.1.2011 kl. 08:20

5 identicon

Daginn sem Bjarni Ben tekur við (tók hann ekki þátt í milljónasukkinu?) flyt ég af landi. Mig minnir líka að síðast þegar hann var við völd (eftir hrun) hafi ríkisstjórn hans ætlað að greiða IceSave. Eina ástæðan fyrir því að stjórnarandstaðan er á móti, er því hún er í "andstöðu".

Íslensk pólitík er bara svo klikkuð. Sama hver það er, stjórnarandstaða heitir það, og andstaða við stjórn hefur það alltaf verið.

Þeir sem sitja í andstöðunni berjast móti stjórninni, sama hvað hún gerir (enginn flokkur er saklaus í þeim efnum). En mér finnst þó enn of mikið af fólki í Sjálfstæðisflokki sem hefur ekki efni á því að gagnrýna verk núverandi ríkisstjórnar.

Hitt er annað mál: Ef nýtt fólk kemur inn (skiptir ekki máli undir hvaða merkjum), þá skal ég glaður styðja þau inn á þing, svo fremi sem það sé heiðarlegt og gott fólk. Vandamálið er bara að finna gott og heiðarlegt fólk sem er til í þetta og koma því inn á þingið. En ég er reyndar sannfærður um að Steingrímur og Jóhanna séu bæði að gæta hagsmuna allra, þótt þau séu eflaust langþreytt á erfiðu ástandi í landinu.

Tómas Árni (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 10:25

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Bendi bara á fyrrir færsu mína/Kveðja Tómas !!!

Haraldur Haraldsson, 30.1.2011 kl. 10:32

7 identicon

Sorglega staðreyndin er líklega sú, að í næstu kosningum, þá verður landinn orðinn svo þreyttur á ástandi síðustu ára að þeir kjósa breytingu (þ.e. ekki VG né Samfylkingu) semsagt Framsókn og Sjálfstæðisflokk að öllum líkindum.

En þá verður núverandi ríkisstjórn líklega búin að taka til og hreinsa upp allt ruslið sem þáverandi ríkisstjórn skildi eftir, og ný ríkisstjórn fær bara nýtt og heint blað! Allir verða gífurlega ánægðir með nýju ríkissstjórnina, og munu bölva hinni ömurlegu ríkisstjórn sem gerði ekkert nema hækka skatta (æjá.. og koma landinu úr kreppu kannski???)

Enn sorglegra er, að þetta var mér ljóst um leið og núverandi ríkisstjórn var kosin. Steingrími varð það líka ljóst, að hann yrði líklega óvinsælasti þingmaðurinn í langan tíma. En honum var sama! Því hann þurfti að taka til hendinni og redda málunum.

Tómas Árni (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 10:43

8 Smámynd: Haraldur Haraldsson

það er að færast svolítil sanngirni með okkur Tómas og er það vel/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 30.1.2011 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband