Of langt gengið í hækkunum/þeim þessum kommum er alveg sama um okkur Borgarbúa,við erum bara leiguþý i okkar borg!!!

Of langt gengið í hækkunum
Innlent | mbl.is | 29.3.2011 | 17:34

Mynd 559055 Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði segja að meirihlutinn gangi of langt í gjaldskrárhækkunum Orkuveitunnar. Miðað við upplýsingar sem liggi fyrir muni þær auka kostnað meðalfjölskyldu í borginni um 18-30.000 á ári. Óvíst sé um áhrif á fyrirtæki.

Sjálfstæðismenn telja að farsælla hefði verið að fara hægar í slíkar hækkanir eða hraða öðrum aðhaldsaðgerðum fyrirtækisins. Fram kom í dag að gert er ráð fyrir að á sex ára tímabili skili 45% hækkun fráveitugjalds um  6,1 milljarði króna og 8% hækkun gjaldskrár fyrir heitt vatn skili 1,9 milljarði króna.  Í tilkynningu frá meirihlutanum kom fram að hækkunin feli í sér að útgjöld fjölskyldu í íbúð af algengri stærð aukast um tæplega 1.500 kr. á mánuði. 

Í bókun Sjálfstæðismanna segir að ástæða þess að ekki tókst að tryggja OR endurfjármögnun hafi ekki verið að fullu skýrð. Í samantekt forstjóra OR komi fram að þau vilyrði sem fyrirtækið hafði fyrri hluta árs 2010 um fyrirgreiðslu lánastofnana hafa ,,gjörbreyst til hins verra” síðari hluta sama árs svo vitnað sé beint til orða forstjórans.

„Þessi staða er því miður hvorki í samræmi fyrri væntingar né áform núverandi stjórnar sem hefur nú í tæpt ár farið með verkefnið og m.a. gripið til harkalegra aðgerða gagnvart borgarbúum með þeim rökum að það myndi tryggja endurfjármögnun. Þær yfirlýsingar hafa ekki gengið eftir og því verða eigendur nú að finna aðrar leiðir en lántökur til að fjármagna fyrirtækið næstu árin.
Þær aðgerðir sem meirihlutinn hefur nú kynnt gera ráð fyrir það geti gengið eftir, sem segir talsvert um styrk fyrirtækisins, sem forsvarsmenn sama meirihluta hafa kosið að tala um með óábyrgum og óvönduðum hætti allt frá því þeim var falið að leiða það stóra verkefni,“ segir í bókuninni. 

Sjálfstæðismenn vekja einnig athygli á því að borgarsjóður sé sterkur bakhjarl en það ráðist einkum af því að strax eftir efnahagshrun hafi Reykjavíkurborg byrjað að byggja upp sérstakan sjóð sem hefði yfir að ráða 10-12 milljörðum til að verja fyrirtækið. „Sú fyrirhyggja sem borgarstjórn sýndi með þeirri aðgerð nýtist nú og mun miðað við útreikninga fjármálastjóra ekki ógna lausafjárstöðu borgarinnar né þeirri ávöxtun sem borgin á að njóta af slíkri fjárhagsstöðu,“ segir í bókun sjálfstæðismanna.////þessa komma verður að stoppa það eru nóg úrræði til og peningar í  sjóði til að redda þessu sem bankarnir setja upp Borgarbúar taka þetta ekki i mal að hækka þetta ofan á.annað við bókstaflega getum ekki borgað .þetta er sviðvirðislegt og framkoma þessara manna eftir því að er til nógar leiðir út þarna Landsvirkjun getur einnig tekið við miklu af þessu og við þurfum ekki þessar  hækkanir og gerum ekki borgað þær,fáið einhvern til að redda þessu með ykkur þið eruð mát/Halli gamli


mbl.is Of langt gengið í hækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband