Flestir búast við íslensku Nei/vonandi rétt og gengur eftir: það er bara það eina í stöðuni,að mínu álti!!!!

Flestir búast við íslensku Nei
Innlent | mbl.is | 9.4.2011 | 8:22

Icesave-lögunum mótmælt. Flestir erlendu fjölmiðlanna sem gera Icesave-kosningunni skil telja að íslenskur almenningur muni hafna samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Vísað er til nýjustu skoðanakannana þessu til stuðnings.

Anna Ringstrom, blaðamaður Reuters, bendir á að þrjár síðustu skoðanakannanir hafa bent til þess að samningnum verði hafnað og að meirihlutinn sé frá 52-57%.

Þá skrifar Andrew Ward, sérfræðingur Financial Times í málefnum Norðurlanda með aðsetur í Stokkhólmi, að ef samningnum verði hafnað setji það framtíð vinstristjórnarinnar í töluverða óvissu.

ESB-umsókin yrði í uppnámi

Ward ræðir við dr. Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing.

„Öll efnahagsstefna stjórnvalda byggir á að því að koma samskiptum við alþjóðasamfélagið í eðlilegt horf og í því felst að leysa Icesave-deiluna og þrýsta á aðild að Evrópusambandinu,“ segir Eiríkur Bergmann í samtali við FT. „Verði útkoman nei verður mjög erfitt fyrir stjórnina að halda áfram á sömu braut.“

Ward bendir á að vextir nýja samningsins séu betri en þess fyrri en að fjöldi Íslendinga sé alfarið á móti því að verða sendur reikningur vegna mistaka bankamanna og eftirlitsaðila með fjármálamörkuðum.

Ómar R. Valdimarsson blaðamaður skrifar fyrir alþjóðlegu viðskiptafréttaveituna Bloomberg.

Hann tók verslunareigandann Stefán Gunnarsson tali í miðborg Reykjavíkur.

„Það stendur hvergi að Íslandi sé lagalega skylt að borga fyrir þetta fáránlega ævintýri Landsbankans. Komist dómstóll að þeirri niðurstöðu að við berum lagalega ábyrgð verður svo að vera. Þangað til er svarið: Nei takk,“ segir Stefán.//////þetta synir okkur að´þeir erlendu eru ekkert vissir um að við eigum að borga og þessi áróður er og hótanir eru bara vitleysa að mestum hluta en ekki  að erlendis séum við úthrópaðir vanskilamenn ,þetta er ekki svona við höfum engin efni á að borga þetta al ekki og það er staðreyndin ekkert annað og það gerum við ekki með Nei sögðu !!!!!


mbl.is Flestir búast við íslensku Nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband