Fjölmiðlalög samþykkt/Boða og bann stjórin hafði sitt fram,það líður að því að við gamlingjanir verðum ein eftir aðrir flýja landið!!!

Fjölmiðlalög samþykkt
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 11:38

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Ný heildarlög um fjölmiðla hafa verið samþykkt á Alþingi. Með setningu þeirra er ætlunin að samræma löggjöf um alla fjölmiðla á landinu, óháð miðlunarformi. Þingmenn minnihluta gagnrýndu það harðlega að ekki skuli tekið á eignarhaldi fjölmiðla og stöðu Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hóf umræður um kosninguna og sagði vissulega mörg álitaefni, en setning laganna væri jákvætt skref fyrir starfsumhverfi fjölmiðla á Íslandi.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menntamálanefnd, segir lögin ekki taka til þeirra meginþátta sem heildarlöggjöf um fjölmiðla þyrfti að taka til - eignarhaldi á fjölmiðlum, og stöðu Ríkisútvarpsins. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði lögin þrengja að starfsumhverfi allra fjölmiðla annarra en Ríkisútvarpsins.

Skúli Helgason, formaður menntamálanefndar, tók stuttlega til máls og nefndi sérstaklega þær bætur sem lögunum er ætlað að gera á starfsumhverfi blaðamanna og einnig stöðu heimildarmanna þeirra. Hann kom ekki inn á gagnrýni minnihlutans um það sem þeir telja upp á vanta.

Eygló Harðardóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í menntamálanefnd, greiddi atkvæði með frumvarpinu og sagði þá sem gagnrýna það gera það af vanþekkingu og fordómum.///þetta er afleit lög og boð og bann stjorinin  til skammar ekkert annað það er ýmist i ökkla eða eyra ekkert þar á milli i öfgum þessarar ríkisstjórnar,það er von að fólk vilji við hana losana/Halli gamli


mbl.is Fjölmiðlalög samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvað er þá nákvæmlega svona afleitt við þau?

Skúli (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 12:58

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

eins og ég segi þarna Skuli er ekkert tekið a´eignahaldi og svo að stofna eina nefndina enn sem á að skoða ritfrelsið og svo margt annað sem þú getur lesið um i lögunum/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 15.4.2011 kl. 13:11

3 Smámynd: Umrenningur

Það sem mér þykir verst er að úrskurðir fjölmiðlaráðs eru endanlegir þ.e ekki hægt að áfrýa ákvörðun stjórnsýslu til dómstóla. Norður Kórea hvað.

Umrenningur, 15.4.2011 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband