Biðstaðir fyrir puttaferðalanga/als ekki svo vitlaus hugmynd,bara góð að mínu mati!!!

Biðstaðir fyrir puttaferðalanga
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 14:17

Elías Jónatansson, bæjarstóri Bolungarvíkur, Jónas...„Það er minn draumur að þetta verði svona á stöðum úti á landi þar sem eru fátæklega almenningssamgöngur,“ segir Jónas Guðmundsson hjá Leið ehf. en skiltum sem marka staði þar sem fólk getur freistað þess að húkka far áleiðis til Ísafjarðar hefur nú verið komið fyrir í Bolungarvík og Súðavík.
Er þetta gert á grundvelli samnings Leiðar ehf. og sveitarfélaganna tveggja og er honum ætlað að gilda í sex mánuði. Að loknum samningstímanum verður framhaldið ákveðið í ljósi þess hvernig til hefur tekist.

„Það er minn draumur að þetta verði svona á stöðum úti á landi þar sem eru fátæklega almenningssamgöngur, sveitarfelögin ákveði stað sem umferð liggur um þar sem menn geta komið sér fyrir með þessum formerkjum,“ segir Jónas Guðmundsson, stjórnarmaður í Leið ehf. Hann segir að enn hafi ekki fengist nein viðbrögð við framtakinu, enda stutt síðan skiltin voru sett upp. Það var gert 20. apríl síðastliðin.

Jónas segist ekki eiga von á að margir muni nýta sér hina merktu staði til að byrja með en segist vona að þegar frá líður verði framtakið sem flestum til gagns.

Miðað er við að fólk sem freistar þess að fá far á merktum stöðum greiði lágt gjald hjá þeim leyfir þeim að sitja og taki þannig þátt í ferðakostnaðinum. Þessum ferðamáta er ekki ætlað að keppa við almenningssamgöngur heldur frekar að vera viðbót við þær, til dæmis þá daga eða á þeim svæðum sem þær liggja niðri eða bjóðast ekki yfir höfuð.///þetta er ekki svo vitlaus hugmynd als ekki að bara gott að gera mönnum þetta kleyft að fá far með öðrum og spara ,þetta er að sem er eitt  af sparnaði nú í þessum miklu hækkunum áð eldsneyti og ber að virða á báða vegu,vonandi að þetta  veri bara tekið upp víðar og skoðað sem árangur eftir nokkur tíma/Halli gamli


mbl.is Biðstaðir fyrir puttaferðalanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband