Spáir grísku þjóðargjaldþroti/þetta er að verða sagan endalausa,eða hverjum á að trúa???

Spáir grísku þjóðargjaldþroti
Viðskipti | mbl.is | 13.6.2011 | 23:15

Útsýni yfir Akrópólishæð Aþenu.Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Grikklands og vermir landið nú neðsta sæti matsfyrirtækisins yfir lánshæfi ríkja. Telur matsfyrirtækið allt benda til að Grikkland fari í greiðsluþrot.

Þannig hefur matsfyrirtækið lækkað matið niður úr B í CCC og er ákvörðunin m.a. rökstutt með því að líklegt sé að landið fari að minnsta kosti einu sinni í greiðsluþrot fyrir 2013.

Fjallað er um málið á vef breska útvarpsins, BBC, en þar segir að grísk stjórnvöld hafi brugðist við niðurfærslunni með þeim orðum að matsfyrirtækið horfi framhjá viðleitni stjórnvalda í Aþenu til að tryggja endurfjármögnun á skuldum.

Segir þar jafnframt að líklegt sé að Evrópusambandið muni beita sér fyrir endurskipulagningu skulda líkt og þegar ríki lendi í greiðslufalli. Það muni aftur þýða að skilmálarnir verði verri fyrir lánveitendur en fram þessu.

En Grikkir fengu sem kunnugt er neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu síðasta sumar vegna greiðsluerfiðleika ríkissjóðs.//////// maður veit ekki hverju trúa þarna,þetta er að verða sagan endalausa ,en þetta sannar okkur samt mikið, að það varð heimskreppa!!!! sem verið er samt af vinstri mönnum hérna !!!að það hafi bara verið kreppa hér vegna 18 ára valda sjálfstæðismanna!!!og trúi því hver  sem vill???og ráðist á  kapitalisman og hann tekin af  lífi sem slíkur,en alt er best auðvitað í hófi!!!Sósalistin einnig og kratisman líka þetta er allt gott svona með,en sjalstæðið samt best með samvinnustefnu,en aftur að kreppunni þar eru Írar og Grikkir og fleiri tæpir og ekki víst að þeir hafi þetta af,en við gerum  það ef rétt er farið að,og við  förum að farmkvæma og gera eitthvað til þessa ,annars ef sömu stefnu verur fylgt er þetta dauðadæmt/Halli Gamli


mbl.is Spáir grísku þjóðargjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Kæri Halli

Það er von að þér finnist sagan endalaus. Við vitum að gæfa okkar í framtíð ræðst af gerðum okkar í nútíð. Það er auðveldara að tapa gæfunni en byggja hana upp. Við höfum reist hér ríkt og vel menntað samfélag. Það höfum við gert vegna þess auðs sem viðskiptafrelsi og markaður hefur gefið okkur. Eftir hrunið tala allir niður frjálsan markað af því að eftirlitiið brást. Slíkur umsnúningur gæti orðið okkar þjóðarógæfa. 

Jón Sigurgeirsson , 15.6.2011 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband