OECD mælir með upptöku evru/Við skoðum málin vel OECD vill halda okkur niðri í fátækt!!!!

OECD mælir með upptöku evru
Viðskipti | mbl.is | 22.6.2011 | 11:25

Mynd 484881 Litið til lengri tíma á Ísland að taka upp evruna að mati OECD. Ísland er með minnstu sjálfstæðu flotmynt í heiminum. Önnur smáríki eru annað hvort ekki með sína eigin mynt eða með fastgengi.

Segir stofnunin að upptaka evrunnar muni draga verulega úr sveiflum í verði innfluttrar vöru og þjónustu og draga almennt úr sveiflum í verðbólgunni þar sem um helmingur af utanríkisviðskiptum Íslendinga er við ríki sem eru með evruna eða hafa fest gengi myntar sinnar við evruna, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

„Lægra verðbólguálag og ekkert áhættuálag í gjaldeyrisviðskiptum við evrusvæðið ætti að lækka innlenda raunvexti, bæta nýtingu fjármagns og auka framleiðni en á því sviði hefur Ísland verið eftirbátur flestra annarra OECD ríkja á undanförnum árum.

Kostnaðurinn við að missa gengissveigjanleikann ætti að vera takmarkaður þar sem Ísland er með mjög sveigjanlegan vinnumarkað þó að leiðrétting raungengisins í gegnum vinnumarkaðinn sé seinfarnari leið en í gegnum gjaldeyrismarkaðinn og hugsanlega einnig kostnaðarsamari," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
//////við skulum fara varlega að öllu svona!!!OECD vill bara halda okkur i atvinnuleysi og fátækt,við erum ekki að taka upp evru als ekki ,heldur ekki að ganga í ESB !!!!,en það er hægt að fara betur með krónuna en gert er ,þar liggur hundurinn grafin,fastgengisstefna er einnig til/Halli gamli


mbl.is OECD mælir með upptöku evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband