Það haustaði snemma hjá bændum þetta vorið !!!!!!!!

 haustaði snemma hjá bændum þetta vorið
Innlent | Morgunblaðið | 24.6.2011 | 10:30

Mynd 474093 „Bændur eru ýmsu vanir en fólki bregður auðvitað við að fá svona þegar það er orðið góðu vant. Það þýðir samt ekkert annað en að draga lífsandann í takt við tíðarfarið, þessu verður ekki breytt,“ segir Birgir H. Arason, bóndi á Gullbrekku og formaður Félags sauðfjárbænda í Eyjafirði.

Þrálát kuldatíð það sem af er sumri hefur gert bændum víða um land erfitt fyrir, einkum norðanlands og austan. Vegna lítillar sprettu og kals í túnum hefur þurft að halda skepnum á hálfu eða fullu fóðri sem útheimtir mikla vinnu. Einn viðmælandi Morgunblaðsins orðaði það svo að það „haustaði snemma í vor“, því enda þótt sumarsólstöður séu liðnar og daginn aftur tekið að stytta gætir enn næturfrosts í sumum sveitum. Því hafa tún sem komu illa undan vetri haft lítið færi á að ná sér á strik.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, segir mjög strembið fyrir bændur að takast á við þetta. Ástandið sé alvarlegt norðan- og austanlands, en aðstæður jafnframt erfiðar annars staðar á landinu líka. „Þetta tíðarfar er óvenjulegt og teygir sig alveg suður í Borgarfjörð. Það herðir að, en annars eru bændur mjög magnaðir í því að bregðast við í svona árferði. Þetta er óvenjulegt, en þetta er ekki óþekkt. Svo framarlega sem við fáum ekki snjókomu aftur.“

Óar við spá um snjókomu og frost

Að sögn Haralds kemur betur í ljós um miðjan júlí hvort stórtjón hefur orðið og til hvaða ráðstafana verður hægt að grípa. Búast megi við því að bændur sem þurfi bætur úr Bjargráðasjóði verði ívið fleiri en venjulega. „Við vitum að það verður minni heyfengur og örugglega verða lömbin eitthvað léttari líka, það er alveg ljóst. Þetta er óvenjumikið en Bjargráðasjóður er til þess að taka á svona tjónum og hefur ágæta burði til þess.“

Greina mátti þreytu hjá þeim bændum sem Morgunblaðið ræddi við enda hefur tíðin gert vinnu þeirra margfalt erfiðari. „Að vissu leyti finnst manni maður ennþá vera í sauðburðarstörfunum, við erum enn að gefa fénu,“ segir Hildur Stefánsdóttir, bóndi á Holti í Þistilfirði. Lítill gróður er í úthaga og fé í öllum túnum ennþá að sögn Hildar. „Við erum búin að sleppa einhverjum út fyrir en þær hanga bara í gróðurvinjum því fjalldrapi er ekki farinn að springa út nema bara rétt hérna heim undir byggð.“ Hildur segir þau í raun vera í biðstöðu í von um betri tíð. „En svo óar mann við því að hlusta á veðurspána núna því það á að vera tveggja stiga frost og snjókoma hérna. Við erum ekki í hremmingum þannig séð, en maður verður ósköp þunglyndur af þessu.“

Að Arndísarstöðum í Bárðardal er svipaða sögu að segja af sprettuni. Þar hefur fé þó verið sett upp á heiði en kýr eru enn á húsi á fullum fóðrum. „Það er ekkert fyrir þær að bíta, en við ætlum nú samt að sleppa þeim aðeins svo þær fái að fara eitthvað út,“ segir Þuríður Sveinsdóttir bóndi.

„Við erum samt heppnari en sumir því við fengum nóg af heyi í fyrra, en við eigum ekki hey handa þeim í margar vikur í viðbót.“ Síðastliðin ár hefur korn verið ræktað á Arndísarstöðum og gengið vel en Þuríður segir að nú hreyfist það lítið og óvíst með uppskeruna.

Í Eyjafirði hófst sláttur á sumum bæjum um 20. júní og um svipað leyti var byrjað að sleppa fé. Að sögn Birgis á Gullbrekku eru þessi verk nú um 10-14 dögum seinna en venjulega. „Þetta er ekki mikið sem menn eru að slá, þeir eru að taka einhverja toppa sem komnir eru á undan, snemmsprottnar nýræktir,“ segir Birgir.

Hann segir þó of snemmt að segja til um áhrif þessa tíðarfars á haustið og veturinn. „Menn tala um að heyfengur verði lítill. Það fer allt eftir því hvað menn bíða það lengi af sér að byrja að heyja og auðvitað dregst seinni sláttur og verður lítill sem enginn ef ekki fer að hlýna og koma væta. Þetta verður allt að haldast í hendur, bara eins og blómin í stofunni.“

Mikið kal í túnum og lítið eftir af heyi

Kalskemmdir eru víða miklar í túnum norðan- og austanlands og úthagi auk þess seinn til að gróa. Bændur eru víða orðnir heylitlir enda hefur gjafatími dregist á landinn. Slætti hefur seinkað um allt að tvær vikur og ekki útlit fyrir góðan heyfeng.

Á mörgum túnum hefur reynst erfitt að laga skemmdir vegna bleytu, en þó kemur fram á vef Búgarðs, ráðgjafarþjónustu í landbúnaði á Norðausturlandi, að mörg hundruð hektarar af túnum hafi verið unnir upp og sáð í þá. Bændur eru hvattir til að nýta allar slægjur og dæmi eru um að fyrningum sé miðlað á milli bæja. Að sögn Haralds Benediktssonar hefur það alltaf bjargast þar sem hey fer að skorta. Þótt útlit sé fyrir áframhaldandi kulda allra næstu daga er þó enn ekki útséð um að vöxtur taki við sér ef tíðin skánar.

Ferðamenn tregari til að láta sjá sig þegar sólina vantar

Ferðaþjónustan hefur ekki farið varhluta af kuldatíðinni fremur en bændur. „Þetta er ekki nema svipur hjá sjón, maður sér bara miklu, miklu minna af ferðafólki,“ segir Einar Sigurðsson hjá Arctic Travel.

„Við erum orðin ansi leið á þessu. Ég var nú með hóp af fólki á hestum í gær hér uppi á heiðum og ég man ekki eftir því að hafa séð svona lítinn gróður á þessum tíma í 20 ár að minnsta kosti,“ segir Einar.

Almennt virðist sem erlendir ferðamenn láti veðrið ekki aftra sér, en ekkert sést hins vegar til íslenskra ferðamanna, sem láta veðrið oft ráða og elta sólina.

„Við höfum ekki séð mikla sól og varla komið sumar ennþá,“ segir Anna Gunnarsdóttir hjá Gljúfrastofu í Ásbyrgi. Nýting tjaldstæða þar fylgir mjög sólinni að sögn Önnu, og kuldatíðin hefur ekki verið mjög vænleg til útilegu. „Það er búið að vera mjög kalt og snjóaði, það var allt hvítt hérna eitt miðnættið í kringum 10. júní.“

Heimamenn úlpuklæddir

Á gestastofunni hafa aðsóknartölur hins vegar aðeins lækkað lítillega miðað við sama tíma í fyrra. „Við sjáum breytingar á gestakomum en ekkert rosalegar. Það eru færri en í fyrra en samt er margt erlent ferðafólk sem kemur og er bara mjög ánægt þó það sé kalt.“

Erlingur Thoroddsen hjá Hótel Norðurljósum á Raufarhöfn segir að herbergi hjá honum séu bókuð með löngum fyrirvara og þeir ferðamenn skili sér allir. Hins vegar sé miklu minni lausaumferð og lítið líf á götunum, utan heimamanna „og þeir eru bara úlpuklæddir“. Annars segist Erlingi helst fljúga í hug vísa sem hagyrðingurinn Egill Jónasson á Húsavík kvað eitt sinn á hörðu vori:

Fénaðurinn fer úr hor

- fölna strá og brotna greinar.

Þakki drottni þetta vor,

þeir sem skilja hvað hann meinar./////////Við sem eldri erum  munum svona aðstæður og það ekki gott,en þetta er að verða eitt það lengsta sem hefur verið fyrir Vestan Norðan og Norðaustan og Austan allt til Hornafjarðar,svo auðvitað Gosstaðirnir hér sunnanlands,en þetta er erfitt mjög til búskapar og eiga bændur vegna kals ekki ng hey ef þau það koma,Feðamenska minkar verður eru svo válind um há sumar, og það hefur íll áhrif á hotel og ferðaþjónustuna !!!!að þetta mun veðra mjög slæmt jafnvel þá ur rætist/Halli gamli


mbl.is Það haustaði snemma hjá bændum þetta vorið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband