Undrast orð ráðherra/það gerum við öll sem viljum landi okkar vel!!!!!!

Undrast orð ráðherra
Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2011 | 5:30

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ásamt Štefan Füle,... „Ég á nú erfitt með að trúa því að þarna sé rétt eftir haft. Ef svo er hins vegar, er ljóst að ummælin ganga á svig við álit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis sem fylgdi þingsályktunartillögunni um að sótt skyldi um aðild að ESB,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Tilefnið er þau ummæli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra í samtali við fréttastöðina Euronews í Brussel síðastliðinn mánudag að Íslendingar þyrftu „ekki neinar sérstakar undanþágur“ í sjávarútvegsmálum ef af inngöngu í Evrópusambandið yrði.

Í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að ummæli Össurar vekja furðu forystumanna annarra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi.

„Þessi ummæli eru auðvitað bara með ólíkindum. Það er eins og utanríkisráðherrann hafi tungur tvær, tali með sitt hvorri eftir því hvort hann er hér á landi eða í Brussel,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um ummæli Össurar.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tekur í sama streng. Ummælin beri það með sér að strax sé farið að gefa afslátt í sjávarútvegsmálum gagnvart Evrópusambandinu og það áður en viðræður hefjast um þann málaflokk.

„Mér finnst nú ekki að menn eigi að vera að tjá sig með þessum hætti rétt áður en viðræðurnar hefjast,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. //////Ég mundi áætla að þetta í venjulegu tilliti yrðu bara stjórnaslit ef eitthvað væri að marka stjórnaráttmálan,þetta er svo alverlegt að það jaðrar við að bilun bara og ekkert annað,þetta er orðið alvarlegt mjög og hlýtur að vera stoppað/Halli gamli


mbl.is Undrast orð ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045592

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband