Ferðirnar þriðjungi ódýrari/// Finnst þetta ekki vera deiluefni bara þras um sjálfsagðan hlut!!!

Ferðirnar þriðjungi ódýrari
Innlent | mbl.is | 12.8.2011 | 10:23

Hver ferð með Ferðaþjónustu fatlaðra kostar borgina um... Hver ferð með Ferðaþjónustu blindra í Reykjavík er um þriðjungi ódýrari fyrir borgina en ferð með Ferðaþjónustu fatlaðra. Þetta segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, en einn félagsmanna þess hefur höfðað mál gegn Mosfellsbæ fyrir að vanrækja lögbundnar skyldur gagnvart sér.

Á grein á heimasíðu Blindrafélagsins ber Kristinn saman kostnað Reykjavíkurborgar við Ferðaþjónustu blindra annars vegar og Ferðaþjónustu fatlaðra hins vegar. Þar kemur fram að kostnaður borgarinnar er um 800 krónum meiri á hverja ferð hjá Ferðaþjónustu fatlaðra.

Hjá borginni er blindum tryggðar ferðir með leigubílum á strætisvagnafargjaldi en sérútbúnir hópferðarbílar sem geta tekið við hjólastólum sjá um þjónustu fyrir fatlaða.

„Samkvæmt þessum tölum sem höfum frá Reykjavíkurborg þá er hver ferð í Ferðaþjónustu blindra um það bil þriðjungi ódýrari fyrir borgina en hver ferð í Ferðaþjónustu fatlaðra. Þjónustustigið í Ferðaþjónustu blindra er mikið hærra og sveigjanlegra. Hún getur mætt persónulegum þörfum hvers og eins sem hin gerir ekki,“ segir Kristinn í samtali við Mbl.is.

Hann segir deiluna við Mosfellsbæ og Kópavog eiga sér margra ára sögu. Blindrafélagið hafi ítrekað bent á þetta en það hafi ekki fengið einu sinni viðræður til þess að útskýra muninn á þessum valkostum.

„Lagaskyldan varðandi þessa þjónustu er mjög skýr. Þetta er lögbundin þjónusta sem sveitarfélagið á að veita. Markmiðið með henni á að vera að gera þeim sem eru fatlaðir og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur kleift að stunda atvinnu, nám og tómstundir. Þegar við erum með einstaklinga sem þurfa að komast ferða sinna með stuttum fyrirvara eða á þeim tímum þegar Ferðaþjónusta fatlaðra er ekki í gangi þá uppfyllir það úrræði ekki þetta markmið,“ segir Kristinn.////Er þetta virkilag þessa virði að deila um þessir blindu men sem stunda vinnu  , eiga að fá þetta samkvæmt jafnræðislögum,þetta er ekki stór peningur að það þurfi að gera þetta veður þessa vegna ,svo geta men tekjutengt þetta þar er er engin goðgá!!!/Halli Gamli


mbl.is Ferðirnar þriðjungi ódýrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband