Hækki fjármagnstekjuskatt/er þetta ekki kallað að koma út úr skápnum einnig!!!

Hækki fjármagnstekjuskatt
Innlent | mbl.is | 28.8.2011 | 16:47

Þorleifur Gunnlaugsson. Hækka ber fjármagnstekjuskatt úr 20% í 30% sem og aðra skatta á þá tekjuhæstu, að mati Þorleifs Gunnlaugssonar, varaborgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík, sem telur að með hærri sköttum megi stuðla að meiri jöfnuði í þjóðfélaginu.

Þorleigur lagði ásamt Einar Ólafssyni, Guðmundi Magnússyni, Jóni Torfasyni og Sigríði Kristinsdóttur fram ályktun á flokksráðsfundi VG um helgina þar sem sagði að fremur bæri að hækka skatta en að skera niður í velferðinni.

Að sögn Þorleifs var ályktunin samþykkt. Hann svarar gagnrýni að ekki bæri að hækka skatta meira svo:

Skortir mat og húsaskjól

„Ég svara þessu nú þannig að þegar staðan er orðin þannig að fjöldi fólks á ekki í sig og á og þak yfir höfuðið þá þurfum við að stíga skref sem leiða til meiri jöfnuðar í samfélaginu. Eina leiðin er að skattaleggja þá sem eiga meira en aðrir til að standa undir velferðinni. Ég sé enga aðra leið.“

Stjórn VG ályktar að ríkisstjórnin hafi náð ótvíræðum árangri í skattamálum. Hvar þá helst?

„Skattar hafa fyrst og fremst verið hækkaðir á þá sem eiga mikið. Fjármagnstekjuskattur er þó alls ekki nógu hár. Ég vil hækka hann um 10% í viðbót og hafa hann 30% eins og í Svþjóð. Svo er það auðlegðarskatturinn. Við þurfum að stuðla að meiri jöfnuði. Hann er að mínu mati ekki nógu mikill í íslensku samfélagi í dag.

Við þurfum að getað fjármagnað velferðina á erfiðum tímum. Þeim er alltaf að fjölga sem eiga ekki fyrir mat síðustu dagana fyrir mánaðamót. Ég hef undanfarið rætt við fólk sem er heimilislaust. Það fær ekki lán fyrir útborgun á leigu. Það er krafið um tvo mánuði fyrirfram og einn mánuð í tryggingu af leigusölum. Þetta fólk á ekki slíkt fé tiltækt.  

Þegar það þrengir að verðum við að axla byrðarnar saman. Það er eitthvað af fólki sem á mjög mikið af peningum.“

Þorleifur bendir jafnframt á að húsaleigubætur hafi ekki hækkað síðan í maí 2008, á sama tíma og húsaleiga hjá Félagsbústöðum Reykjavíkur hafi hækkað um 29%, skv. vístölu verðtrygginga.

„Það segir mér að húsnæðiskostnaður fólks sem leigir hjá af félagsbústöðum hefur hækkað verulega. Þetta er fátækasta fólkið í samfélaginu. Það er á lægstu laununum eða þiggur atvinnuleysisbætur eða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga,“ segir Þorleifur.//það er nú svo að þessi Þorleifur er sennilega ágætis maður og vill vel um það sem hann er að tala um ,en þetta er samt svo ein og ég segi þar fyrr að þetta er að semsagt að koma út úr skápnum sem V.G. eru alltaf í og koma  svo núna með það sem eru þeirra ær og kýr að hækka skatta á okkur sem eigum nokkrar krónur á banka svo og g hækka tekjuskatt á tekjuháa sem er nú 46% er þetta i lagi,nei það er.það ekki,og við getum ekki farið þessi leið,als ekki það yrði bara flotti fólk út á aðra vinnu,en það er akki tala um að framkvæma nei það ma´ekki og atvinnu vantar til að borga skatta,en V.G. stoppa þar allt!!!það er leiðin sem flestir, með viti banda á að framkvæma og auka vinnu og allt það,eina leiðin engin önnur/Halli gamle


mbl.is Hækki fjármagnstekjuskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband