Þingeyingar ósáttir með svör Steingríms og gengu út//hver er sáttur við orð hanns!!!!

Fulltrúar fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum gengu í gær út af fundi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem nú stendur yfir. Ástæða þess að þeir fóru út úr salnum voru orð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra sem var að svara fyrirspurn um atvinnumál í Þingeyjarsýslum.

Þeir sem gengu út voru fulltrúar Norðurþings, Þingeyjarsveitar, Langanesbyggðar og Skútustaðahrepps.

Guðný Sverrisdóttir oddviti Grýtubakkahrepps hafði spurt Steingrím um efndir á loforðum um atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum. Steingrímur svaraði því til að óraunsætt væri að ætla sér að byggja 360 þúsund tonna álver á svæðinu. Til þess þyrfti að virkja Skjálfandafljót.

Ónefndur sveitarstjórnarmaður sem fréttastofa ræddi við á fundinum lýsti því sem svo að Steingrímur hefði í raun „drullað" yfir Þingeyinga með svari sínu.

Gunnlaugur Stefánsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings, og einn þeirra sem gengu af fundi, sagðist ekki vita hvað Steingrímur ætti við með 360 þúsund tonna álveri. Viljayfirlýsing sem samþykkt hafi verið á sínum tíma geri ráð fyrir 250 þúsund tonna álveri. Þá séu engir að tala um að virkja eigi Skjálfandafljót nema Vinstri grænir. Gunnlaugur segir að þegar hann hafi heyrt fjármálaráðherrann tala á þessum nótum hafi hann ákveðið að ganga út.

Guðrún María Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, sem einnig yfirgaf fundinn, sagði að þau orð, sem fjármálaráðherrann viðhafði, hefðu verið mjög ósanngjörn og ómakleg. Hann hefði með ummælum sínum gengið yfir strikið.

Þessum orðum varð ég að stela frá Vísi !!! og þar feiginlega ekki að segja neitt ,Þau svar sér sjálf/Halli gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband