Gerendur skaða kirkjuna/satt er drottins orðið!!og þetta vel sagt af séra Sigurði Árna !!!

Gerendur skaða kirkjuna
Innlent | mbl.is | 19.10.2011 | 22:17
Neskirkja í Reykjavík. „Ég trúi Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og vil þakka henni þá hetjudáð að segja sögu sína. Skaðar sagan kirkjuna? Nei, fórnarlömb skaða ekki heldur aðeins gerendur," segir sr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, m.a. í pistli sínum á vefnum tru.is um mál Guðrúnar Ebbu.
og ásakanir hennar á hendur föður sínum, Ólafi Skúlasyni biskup.

Sr. Sigurður Árni byrjar pistil sinn á að rifja upp að fyrir liðlega 30 árum hafi hann ásamt þremur félögum sínum gengið um Hornstrandir. Áður en lagt hafi verið af stað hafi verið farið til messu á sunnudegi í Staðarkirkju í Aðalvík.

„Prestur var kominn að sunnan og við sem vorum í kirkju hlustuðum á hann prédika um huliðshjálm, það sem væri hulið og það sem væri opinbert. Ræða hans um það sem ekki sést barst inn í eyrun og út yfir hvannastóð og fíflabreiður. Þetta var svo sérkennileg ræða að við, þrír prestlingar og einn tæknimenntaður, ræddum um prestinn huliðshjálm alla leiðina austur í Horn. Orðið huliðshjálmur dregur síðan fram í hug mér myndina af honum sem lagði út af þessu orði sem ekki er til í Biblíunni. Það var Ólafur Skúlason," ritar sr. Sigurður Árni og heldur áfram:

„Nú hefur dóttir hans lyft huliðshjálmi og sýnt hann í nýju ljósi. En sjálf hefur Guðrún Ebba Ólafsdóttir komið úr villum og felum og losnað úr álagafjötrum. Sjónvarpsviðtal við hana fyrir liðlega viku var lamandi. Síðan las ég harmsögu hennar, sem er sögð af sláandi og þroskuðu æðruleysi og líka virðingu fyrir ástvinum. En tilgangurinn er augljóslega að láta gott af leiða og hjálpa þolendum og samfélagi til vitundar um kynferðisofbeldi og hvað er til ráða.

Í nánum samskiptum fólks á heimilum kremur ofbeldi. Í stofnunum, íþróttafélögum og skólum líka verður fólk fyrir illsku. Í öllum lögum og stofnunum samfélagsins verður fólk fyrir ólíðandi framkomu. Ofbeldismenn leita valds og aðstæðna sem auðvelda þeim illvirki. Þar sem velvilji og traust ríkir eins og í trúfélögum og kirkjum geta slíkir menn nýtt aðstæður sínar til misnotkunar á fólki. En fólk á að geta treyst kirkjum. Prestar eru ekki fullkomnir menn, en gera á ríkar kröfur til andlegrar heilbrigði þeirra og persónuþroska. Þjóðkirkjan verður að skerpa enn skimunarferla prestsefna og skoða reglulega þjóna kirkjunnar. Hið sama ætti að gera varðandi starfsfólk skóla og tómstundafélaga.

Ég trúi Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og vil þakka henni þá hetjudáð að segja sögu sína. Skaðar sagan kirkjuna? Nei, fórnarlömb skaða ekki heldur aðeins gerendur. Jesús Kristur leysti álög og stóð alltaf með þolendum. Kirkja hans á alltaf að berjast fyrir að þau fái notið réttlætis. Guðrún Ebba hefur orðið okkur fyrirmynd um að hægt er að lyfta huliðshjálmi. Og skilaboðin eru skýr um að við megum ekki firra okkur ábyrgð og láta sem ekkert sé: Ekki líta undan."////Þetta er vel sagt og trúverðugt og við viljum trúa að þessu verði framfylgt,og gerendurnir einnir látnir sæta á byrgð en ekki þolendur eð þeir sem ekki voru meðvitaðir/Við skulum i öllum bænum styrkja trúna!!!Halli gamli


mbl.is Gerendur skaða kirkjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband