RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna/Ögmundi heitt í hamsi !!!!!!Er ekki verið að segja að RÚV sé svo vinstrisinað???

RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna
Innlent | mbl.is | 25.10.2011 | 13:48
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. „Hvernig væri að gefa nú skýrslu um ferðir starfsmanna Ríkisútvarpsins,“ spyr Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í pistli á bloggsíðu sinni. Tilefni skrifanna eru þau, að nýverið óskaði RÚV eftir upplýsingum um för Ögmundar til Mexíkó, þar sem hann sótti ráðstefnu um samgöngumál.

Svörin við spurningum RÚV voru birt á vef innanríkisráðuneytisins í gær.

Ögmundur segir að RÚV myndi sýna einlægan vilja í verki með því að birta upplýsingar um ferðir starfsmanna stofnunarinnar. 

Hvernig væri að Óðinn [Jónsson] fréttastjóri gerði grein fyrir sjálfum sér og sinna starfsmanna á undanförnu ári? Páll [Magnússon] útvarpsstjóri mætti einnig gefa okkur skýrslu um sig og sína skrifstofu. Þetta er sagt í fullri alvöru,“ skrifar Ögmundur.

„Síðan væri verðugt rannsóknarefni að kanna ferðakostnað vegna ESB viðræðna, í stjórnsýslu, í  ráðuneytum, á Alþingi, í fjölmiðlum, þ.á.m. RÚV. Ríkisútvarpið hefur sagt A. Nú verður varla látið staðar numið? Eða hvað, Óðinn og Páll,“ spyr innanríkisráðherra.

Ögmundur segist ekki gera minnstu athugasemd við það að fréttastofa RÚV vilji vita hvernig farið sé með skattfé almennings. Það sé hlutverk fjölmiðla að veita aðhald.

„Það er helst að ég staldri við þann skilning Ríkisútvarpsins að þátttaka í alþjóðasamstarfi hljóti fyrst og fremst að byggja á því að flytja þekkingu af ráðstefnum til síns heima en virðist ekki koma auga á þann möguleika að fulltrúar séu sjálfir veitendur, taki m.ö.o. þátt í umræðu og leggi til málanna,“ skrifar Ögmundur.

RÚV spurði ráðherrann m.a. að því hvernig sú þekking, sem skilaði sér til fundarmanna, yrði varðveitt í ráðuneytinu, t.d. eftir að ráðherrann láti sjálfur af embætti.

„Ég geri ekki heldur athugasemd við að Ríkisútvarpið skuli hefja rannsóknarfréttamennsku sína á mér. Einhvers staðar þarf að byrja. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu,“ skrifar hann ennfremur.

Ögmundur gagnrýnir einnig á vef sínum hvernig vefmiðillinn eyjan.is sagði frá málinu.///Ég og margir erum Þarna sammála Ögmundi af hverju að vera að taka hann bara í þessa frétt??? spurning sem RÚV verður að svara!! en svo birting er bara í lagi ef allur eru undir sama hatti ein og T.D RÚV er opinber stofnun og margar fleiri/Halli gamli


mbl.is RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Innilega sammála þér Halli minn.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.10.2011 kl. 16:29

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega Haraldur minn, nákvæmlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1045454

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband