Krefst lögbanns á starfsemi fyrrum forstjóra///allt komið i hasar þarna!!!

Krefst lögbanns á starfsemi fyrrum forstjóra
Innlent | mbl.is | 26.10.2011 | 7:47
Matthías Imsland. Krafist hefur verið lögbanns á að Matthías Imsland, fyrrum forstjóri Iceland Express, nýti sér trúnaðarupplýsingar sem hann bjó yfir í starfi sínu þar til að vinna að stofnun annars flugrekstrarfélags.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Í gærkvöldi var tilkynnt að Matthías væri hluthafi í nýju flugfélagi ásamt Skúla Mogensen, aðaleiganda MP banka, og fleirum og félagið ætli í vor hefja flugrekstur og bjóða upp á flug á milli Íslands og annarra Evrópuríkja.

Fréttablaðið segir að í lögbannskröfunni komi fram að Matthíasi hafi verið sagt upp störfum hjá Iceland Express 19. september síðastliðinn fyrir að hafa fegrað bókhald félagsins. Matthías hafi haldið tölvum og símum sem félagið ætlaði að greiða fyrir þar til uppsagnarfresti lyki 1. apríl á næsta ári. Í tvö ár þar á eftir megi hann ekki fara í samkeppni við Iceland Express og í þrjú ár megi hann ekki hagnýta sér trúnaðarupplýsingar sem hann hafði aðgang að sem forstjóri.

Lögmaður Matthíasar Imsland segir lögbannskröfu Iceland Express á hendur honum fráleita og eingöngu til þess að sverta hann og kasta rýrð á störf hans. Matthías tekur þátt í stofnun nýs flugfélags sem hefja á starfsemi í vor.

Í tilkynningu kemur fram að fjárfestingarfélagið Títan, sem er að fullu í eigu Skúla Mogensen fjárfestis, hafi um hríð skoðað kosti þess að hefja flugrekstur til og frá Íslandi.

Sú vinna sé nú á lokastigi. Félagið hyggst hefja flug til Evrópu í vor. Títan á meirihluta í félaginu en meðal annarra hluthafa er Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express.

Fréttablaðið greinir frá því í dag að Iceland Express hafi krafist lögbanns á að Matthías notfæri sér trúnaðarupplýsingar frá félaginu til að vinna að stofnun annars fyrirtækis í flugrekstri. Í kröfunni komi meðal annars fram að Matthías hafi verið rekinn úr starfi forstjóra fyrir að fegra bókhald félagsins.

Bætt við fréttina klukkan 8:35

Í yfirlýsingu sem lögmaður Matthíasar, Jóhannes Árnason, sendi frá sér í morgun, segir að þessi krafa eigi sér enga stoð í lögum eða skriflegum samningum. Raunverulegt markmið kröfugerðarinnar sé að sverta Matthías og reyna að kasta rýrð á störf . Skoðað verði gaumgæfilega hvort ástæða sé til að höfða mál vegna rógs og tilhæfulausra ásakana sem fram koma í lögbannskröfunni.

„Af gefnu tilefni vil ég óska eftir að eftirfarandi komi fram. Lögbannskrafa Pálma Haraldssonar á hendur skjólstæðingi mínum, Matthíasi Imsland, á sér enga stoð í lögum né í skriflegum samningum. Ráðningarsamningur Matthíasar Imsland, og ákvæði um takmarkanir á atvinnufrelsi hans, féllu úr gildi um leið og Pálmi kaus að segja honum upp. Allir geta velt því fyrir sér hversu trúverðugt það er að aðili sem gerir út á mikilvægi samkeppni í auglýsingum, beiti á sama tíma þvingunarúrræðum til að bregða fæti fyrir samkeppni í flugrekstri. Öllum má jafnframt vera ljóst hvert sé raunverulegt markmið þessarar dæmalausu kröfugerðar – það er að sverta skjólstæðing minn og gera tilraun til að kasta rýrð á störf hans á nýjum vettvangi.

Nýlega hætti eftirmaður skjólstæðings míns hjá Iceland Express störfum eftir einungis 12 daga í starfi og mátti hann í kjölfarið þola atlögu í fjölmiðlum þar sem dylgjað var um störf hans. Nú er það skjólstæðingur minn sem er skotmarkið. Átelja verður vinnubrögð gerðarbeiðandans í málinu, en þau eru fyllilega óásættanleg og ótrúlegt er að slíkar rangar ásakanir séu hafðar uppi í þessum tilgangi.

Þess má að lokum geta að skoðað verður gaumgæfilega hvort ástæða sé til að höfða mál vegna rógs og tilhæfulausra ásakana sem fram koma í lögbannskröfunni. En fyrst verður farið fram á það að Sýslumaðurinn í Reykjavík hafni þessari fráleitu kröfugerð Pálma Haraldssonar og mun ég mæta fyrir hönd skjólstæðings míns og leggja fram gögn því til stuðnings," segir í yfirlýsingu frá Jóhannesi.////þarna er allt komið i hasar út af þessu stofnun nýs flugfélags og það er ekki nýtt að svona vinnubrögðum sé beitt !!!en svona mál eru erfið mjög/Halli gamli


mbl.is Krefst lögbanns á starfsemi fyrrum forstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband