Hverfandi líkur á að álver rísi í Helguvík/lygaþvælunni hjá þessari ríkisstjórn verður að linna!!

Hverfandi líkur á að álver rísi í Helguvík
Innlent | mbl.is | 26.10.2011 | 15:17
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Það er mat formanns Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálms Birgissonar, eftir að hafa hlustað á forstjóra Landsvirkjunar, Hörð Arnarsonar, á formannafundi ASÍ að hverfandi líkur séu á að framkvæmdir vegna álversins í Helguvík verði að veruleika.

Það kom fram í máli Harðar að Norðurál ætti eftir að fjármagna verkefnið að andvirði 250 milljarða og taldi hann að það yrði gríðarlega erfitt fyrir Norðurál að fjármagna verkefnið sökum ástandsins á alþjóðlegum mörkuðum.

„Það var í raun og veru undarlegt að hlusta á forstjórann tala um Helguvíkurverkefnið því eins og áður sagði var ekki hægt að skilja forstjórann öðru vísi en að hverfandi líkur séu á því að þetta verkefni verði nokkurn tímann að veruleika.

Einnig kom fram í máli hans að ef allt myndi ganga upp varðandi fjármögnun og aðra þætti er lúta að þessari framkvæmd, þá væri í fyrsta lagi hægt að afhenda raforku til álversins eftir 5-6 ár. Aðspurður sagði forstjóri Landsvirkjunar að pólitísk afskipti gagnvart stjórn Landsvirkjunar í þessu máli og öðrum væru alls ekki til staðar. En að sjálfsögðu velta menn því fyrir sér hvort svo geti verið í ljósi þessara tafa sem hin ýmsu stóriðjuverkefni hafa mátt þola á undanförnum mánuðum og árum.

Þessi niðurstaða, ef rétt reynist, hlýtur að vera gríðarleg vonbrigði fyrir Suðurnesjamenn sem og þjóðina alla, vegna þess að hagvaxtaspár t.d. ASÍ byggjast að stórum hluta á því að þessar framkvæmdir fari á fulla ferð á næstu misserum. Við Akurnesingar þekkjum vel mikilvægi stóriðjunnar og þau sterku áhrif sem stóriðjan hefur á allt samfélagið. Á þeirri forsendu skilur formaður vel áhyggjur Suðurnesjamanna ef af þessum framkvæmdum verður ekki," segir í pistli sem Vilhjálmur ritar á vef Verkalýðsfélags Akraness.////Við erum leynt og ljós búin að sjá að þessi Ríkisstjórn er óhæf og allt sem að henni snýr,"Eftir höfðinu dansa limirnir" segir máltækið,og það sannast þarna ekki spurning ,það ´verur allt stoppað'sem gæti komið okkur i hagvöxt og vel það talað um einhver mynni firirtæki og málinu dreift á langinn,og ekkert i hendi,er ekki komin tími góðir Landar að ´við tökum í taumana ,áður en það verður of seint,við getum ekki búið við þessa lygi lengir dag eftir dag,burt með þessa ríkisstjórn,hún er meinsemdin!!!!/Halli gamli


mbl.is Hverfandi líkur á að álver rísi í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband