Þarf tvær fyrirvinnur/þetta er löngu vitðað ekki spurning!!!!!

Þarf tvær fyrirvinnur
Innlent | mbl.is | 28.10.2011 | 12:07
Einstæðir foreldrar standa illa. Lára Björnsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar segir niðurstöður lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2011 vera birtingarform kreppurnar og sér fyrir sér að tölurnar eigi bara eftir að hækka á næstu árum.

„Kreppa er eins og flóðbylgja sem eftirbylgjur fylgja lengi á eftir. Auðvitað geta aðgerðir bjargað þessu. Ef ríkisstjórnin myndi ákveða myndarlega að fara inn í aðstæður þessara fjölskyldna sem standa verst og ef að þessar aðgerðir sem hafa verið settar af stað myndu virka yrði þetta til skemmri tíma. En ég óttast að þessar tölur muni ekki lækka fyrr en eftir einhver ár."

Tölurnar koma ekki á óvart

Velferðarvaktin hefur tekið saman í einum félagsvísi sínum hlutfall þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman samkvæmt lífskjararannsóknum Hagstofunnar. „Árið 2004 vorum við að koma út úr síðustu kreppu sem var ekki eins djúp og þessi en þá voru 46,2% sem sögðust eiga erfitt með að ná endum saman.

Næsta ár á eftir voru þeir 36,8 %. 2006 voru þeir 34,8%, í góðærinu 2007 fór talan niður í 28,4% og árið 2008 var hún í 30%. Árið 2009 eru þeir komnir upp í 39%, 49,3% í fyrra og svo nú eru þeir 51,5% sem segjast eiga erfitt með að ná endum saman," telur Lára upp og bætir við að þessar tölur komi henni ekki sérstaklega á óvart.

„Það er hækkandi verðlag og verðbólgan þýðir það að öll verðtryggðu lánin hækka svo róðurinn verður þyngri fyrir fólk. Þetta er auðvitað mat einstaklinga á eigin fjárhagsstöðu. Það er líka ekki alveg sambærilegt með tekjur og að ná endum saman. Það eru margir með mjög góðar tekjur sem eru búnir að skuldsetja sig rosalega og eiga því erfitt með að láta enda ná saman. Það eru allskonar aðstæður sem er ekki farið ofaní þarna," segir Lára.

Mestar áhyggjur af barnafólki

Samkvæmt norræna velferðarmódelinu þarf tvær fyrirvinnur að sögn Láru. „Tölurnar með einstæðu foreldrana koma ekki á óvart. Í okkar síðustu tillögum til stjórnvalda var efst á blaði að bregðast við þessum mikla fjárhagsvanda sem fátækar barnafjölskyldur, einkum einstæðir foreldrar, búa við. Þess vegna þarf stuðning við einstæða foreldra og lágtekjufjölskyldur þar sem bara annað foreldrið getur unnið eða slíkt. Það sem við hjá Velferðarvaktinni höfum mestar áhyggjur af eru barnafólkið og við höfum lagt mikla áherslu á að gæta barnanna."////þetta er vitað fyrir löngu,en við sem lifðum það ,að faðirinn oftast var fyrirvinnan og konan heimavinnandi ,með Björninn vitum hvernig þetta hefur þróast!! svo komu stríðárin og uppgangur allt breyttist,þó ekki srax  með að konan var heima ekki veitti af börnin voru oftast fleiri þó fátækt væri mikli,en það kemur svo um 1960-70 að þetta fár að allir eiga að eignast húsnæði og bila,að konan fer að vinna einnig úti og heima,en svo er nú komið að þetta er orðið vandamal og hefur verið ,n nú lifir ekki heimilið af nema tveim sem vinna,þetta er eignilega ljótt að segja afturför/Halli gamli


mbl.is Þarf tvær fyrirvinnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já Halli minn, sannleikurinn er því miður ljótur, og freistandi að horfast ekki í augu við hann. En ekkert lagast ef vandinn er ekki viðurkenndur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.10.2011 kl. 15:06

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

sammála erum við þarna Anna vinkona/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 28.10.2011 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband