Hafnar rökum stuðningsmanna evru/Sérfræðingar eru sumir góðir?? þessi veit samt hvað hann segir!!!

Hafnar rökum stuðningsmanna evru
Viðskipti | mbl.is | 28.10.2011 | 21:32
Paul KrugmanPaul Krugman hagfræðingur segir að sum rök sem talsmenn þess að taka upp evru í stað krónu noti einkennist af þröngsýni. Hann hafnar þeim rökum að krónan sé ónothæf vegna þess að hátt gengi hennar fyrir hrun samhliða háum stýrivöxtum hafi sogað til sín erlent fjármagn.

Krugman sat í vikunni ráðstefnu í Hörpu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stóð að um stöðu peningamála á Íslandi fyrir og eftir hrun. Hann segist hissa á því hversu margir hafi á ráðstefnunni talið að orsök hrunsins megi rekja til þess að fljótandi gengi krónunnar hafi sogað hingað mikið af erlendu fjármagn í skjóli hárra vaxta.

Krugman bendir á að þetta flæði erlends fjármagns sé alls ekki einsdæmi fyrir Ísland. Hann birtir súlurit máli sínu til stuðnings en það sýnir að fjármagnsflæðið var alls ekki mest til Íslands.

„Staðreyndin er að það skall á flóðbylgja af peningum frá Mið-Evrópu á jaðarríkin. Ísland var bara hluti þessara ríkja sem sum voru með fastgengi gagnvart evru og sum voru með evruna.

Það eru veigamikil rök fyrir því að taka upp evru (og mörg rök gegn því, sem ég tel að séu sterkari). En þetta eru ekki ein þeirra.“//þeir eru margir sérfræðingarnir ekki þó sem segja bara sannleikan það held ég að þessi geri og það gott,en skal Samfylking taka mark á þessu?? eða hvað,við skulum vona að þetta skili sér þangað og menn þar fari að efast!! en okkur sem viljum fara varlaga og skoða hlutina og hvernig allt fer þarna,i ESB er ekki rótt,við eigum auðvitað i viðskiptum við þessar þjóðir og viljum hafa það, ekki spurning!!viljum þeim allt gott en ekki binda meira trúss við þá en bara EES helst sleppa því einnig í bili auðvitað þetta reglufargan er að gera okkur vitlaus,en skoðum það samt!!!/Halli gamli


mbl.is Hafnar rökum stuðningsmanna evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband