„Evran er ekki svöl“/en og aftur erum við mynt á að grínið er Borgarstórin okkar!!!!

„Evran er ekki svöl“
Innlent | mbl.is | 31.10.2011 | 11:50
Jón Gnarr.„Besti flokkurinn var fyrsti stjórnleysis-súrrealista flokkur í heimi,“ sagði Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, í ræðu sem hann flutti á laugardaginn var á Radiovision Festival. Pistlahöfundur New York Times fjallar um borgarstjórann og ræðu hans.

Radiovision Festival var lítil ráðstefna um framtíð útvarps sem haldin var í fyrsta sinn í New York á laugardaginn var. Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, var aðalræðumaður á ráðstefnunni.

„Flokkurinn er hvorki með markmið né skoðun,“ sagði Jón Gnarr um Besta flokkinn. „Hann byggist á hreinu bulli (nonsense). Málið er að ég trúi á bull. Grín er mín trúarbrögð.“

Pistlahöfundurinn Melena Ryzik segir að áhorfendur, sem voru færri en 100 talsins, hafi hlegið að ræðunni en margið gengið út undir henni. Flestir hafi þó verið mjög ánægðir með framlag borgarstjórans í Reykjavík.

Hann vék m.a. að duttlungum fjármálamarkaðarins og sagði íslensku krónuna vera „drasl“. Jón kvaðst heldur kjósa dollarann því „evran er einfaldlega ekki svöl“. Þá svaraði hann spurningum um starf sitt sem borgarstjóri.

„Eitt af því erfiðasta sem þú getur gert í lífinu er að breyta skólakerfi. Það er svolítið eins og að flytja kirkjugarð. Þú færð ekki neina aðstoð innanfrá,“ sagði Jón Gnarr.

Pistlahöfundurinn segir að Jón hafi sýnt á sér alvarlegri hlið í viðtali baksviðs. Þar sagði hann að þeir (Besti flokkurinn) hafi fengið einstakt tækifæri til að hræra upp í hlutunum og hugsa þá upp á nýtt. „Og ég held að við verðum að gera það, allt þetta með pólitík er búið, pólitík er að deyja. Öruggur dauðdaginn mun taka svolítinn tíma og eitthvað stórkostlegt kemur í staðinn,“ sagði Jón Gnarr.

Hann langaði að sjá söngleikinn „The Book of Mormon“ sem settur er upp af South Park Studios, en Jón Gnarr er aðdáandi South Park. Honum fannst miðaverðið of hátt svo hann fór frekar á „Occupy Wall Street“ mótmælin íklæddur svörtum jakka og með órangútangrímu með appelsínugulu hári.///það getur verið að þið þarna ,sem þetta lesið hafið gaman af þessu,en það hefi ég ekki og flesti hugsandi menn og  konur!!! Að vera Grínisti er ekki að vera Borgarstjóri i kreppu sem er að gerst erfið mjög en samt gengur þessi maður ekki bara hérlendis heldur erlendis og gerir grín að alvöru i pólitík!!! .þetta er okkur til skammar og ekkert annað ,við getnum þetta ekki lengur niður með þessi vitleysu,hinna og ekki lengra/Halli gamli


mbl.is „Evran er ekki svöl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stytting á orðinu ,,ennþá", þ.e. ,,enn" er ALLTAF með tveimur N-um. ,,Minnt" er einnig með tveimur N-um og stafnum I er skipt inná fyrir Y sem þú notar. Orðið ,,borgarstjórinn" er ALDREI með stóru B-i í miðri setningu og það er eins með það orð og ,,ennþá" og ,,minnt" að tvö N skulu vera í því orði.

Heiða Haralds (IP-tala skráð) 31.10.2011 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband