Heimilislífið hefðbundið/Mjög svo áhugavert samtal,við son Ólafs Skúlasonar Biskups,um hið umdeilda mál!!!

Heimilislífið hefðbundið
Innlent | mbl.is | 7.11.2011 | 19:43
Ólafur Skúlason biskup Skúli S. Ólafsson, prestur og sonur Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups, segir að heimili hans og fjölskyldunnar hafi verið ákaflega hefðbundið ólíkt því sem systir hans, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, lýsir í ný útkominni bók sinni.

Skúli kom fram í Kastljósi í kvöld en fyrir mánuði kom Guðrún Ebba fram í viðtali í Sjónvarpinu þar sem hún talaði um bernsku sína og ítrekað kynferðislegt ofbeldi af hálfu föður síns.

Hann segist aldrei hafa heyrt talað um einkasalerni Ólafs  sem Guðrún talar um í bókinni. Hins vegar hafi verið gestasalerni í húsinu þar sem Ólafur geymdi rakdót og tannbursta.

 

Ekki raunverulegar minningar heldur falskar

Skúli segist telja að minningar Guðrúnar Ebbu séu ekki raunverulegar minningar heldur falskar minningar og byggir á því að einstaklingur sem hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli fer í einstaklingsviðtöl þar sem minningar verða til.

Skúli segist telja að systir hans telji að hún fari rétt með. Hins vegar geti þetta verið falskar minningar. Hann segir að hann geti ekki haldið neinu fram með fullri vissu þar sem hann viti ekki allt sem hafi gerst.

Hann segir að Guðrún Ebba hafi sagt fjölskyldunni frá því hvað hafi átt að hafa gerst árið 2006 og það hafi verið mikið áfall fyrir alla fjölskylduna. Þau hafi kafað ofan í minningar sínar í kjölfarið. Skúli segir að ekkert annað hafi komið til greina að reyna að standa saman og þau hafi reynt að ræða málin við Guðrúnu Ebbu.

Skúli segir að fjölskyldan sé sundruð og að móðir þeirra hafi reynt að hafa samband við Guðrúnu Ebbu dóttur sína og dætur hennar. Hann segist hugsa til Guðrúnar Ebbu með mikilli væntumþykju. Hún sé mesti þolandinn í málinu. Hún hafi verið leidd út a braut sem einkennist af fölskum minningum og tjón hennar sé mest.

Að sögn Skúla veigra þeir sálfræðingar sem hann hafi verið í sambandi við varðandi málið að stíga fram og lýsa skoðunum sínum og mæta þeirri orrahríð sem muni mæta þeim. Hann segir að hver og einn verði að móta sína skoðun á málinu.

Í viðtali við Sjónvarpið sagði Guðrún Ebba að faðir hennar hefði síðast beitt hana kynferðislegu ofbeldi í Kanada. Skúli segir að móðir þeirra segi hins vegar að Ólafur hafi hrotið við hlið hennar alla nóttina en þau hafi fengið sér í glas um kvöldið. Síðan hafi Guðrún Ebba farið með foreldrum sínum í boð daginn eftir án þess að minnast einu orði á að meint ofbeldi hafi átt sér stað.

Hefur samúð með þeim konum sem hafa stigið fram

Hann segir að það sé ekki í hans verkahring að tjá sig um aðrar ásakanir á hendur föður þeirra um að Ólafur hafi beitt þær kynferðislegu ofbeldi. Skúli segir að hann hafi ekki verið á staðnum þegar þær konur hafi komið fram. Hann segist hafa mikla samúð með þessum konum. Skúli segir þessar ásakanir vera eðlisólíkar þeim ásökunum sem Guðrún Ebba haldi fram. Í þessum málum sé ekki um barnaníð að ræða líkt og Guðrún Ebba sakar föður sinn um. 

Móðir Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur og systkini hennar segja lýsingar hennar af heimili Ólafs Skúlasonar, biskups og fjölskyldu rangar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ebba Sigurðardóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Skúli S. Ólafsson hafa sent á fjölmiðla en nýverið kom út bók Guðrúnar Ebbu þar sem hún sakar föður sinn um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi árum saman.

„Við undirrituð, systkin og móðir Guðrúnar Ebbu, gerum alvarlegar athugasemdir við frásögn hennar í nýútkominni bók og viðtölum við fjölmiðla. Í upphafi bókarinnar segist hún ekki tilheyra lengur fjölskyldunni. Það var alfarið hennar ákvörðun og ekki í samræmi við vilja okkar.

Lýsing hennar á heimilislífi okkar er röng. Heimilið okkar einkenndist ekki af kúgun af hálfu föður okkar og eiginmanns Ólafs Skúlasonar.

Mál þetta hefur verið okkur og fjölskyldu okkar afar þungbært. Fram til þessa höfum við haldið okkur til hlés í þessari umræðu í þeirri von að henni myndi linna fyrr en síðar. Nú er svo komið að við getum ekki lengur orða bundist. Við vörum við einhliða málflutningi og þöggun í þessu viðkvæma máli.

Við hvetjum til þess að fram fari heiðarleg og fagleg umræða um bældar minningar af þeim toga sem Guðrún Ebba segir liggja til grundvallar ásökunum sínum. Við teljum það siðferðilega skyldu okkar að standa vörð um þá sem ekki geta varið sig sjálfir og leiðrétta rangfærslur er okkur varða. Fyrst og fremst þá inniheldur frásögn Guðrúnar Ebbu lýsingar á heimilislífi og atburðum sem ekkert okkar þriggja kannast við.

Ebba Sigurðardóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Skúli S. Ólafsson"

 ///Ég horfið á viðtalið við séra Skúla sem Sigmar stjórnaði i kastljósi ,og talaði hann  mjög svo trúverðugt um þessa hluti,fyrir hönd systkina og móður,það er svo að við getum ekki annað en hlustað á þeirra framburði sem kemur nú eftir að bókin kemur út !!!!,sem hann segir að sé ekki fótur fyrir af fjölskyldunnar áliti og fullyrðir það,og segir þetta vara salfræðilegt dæmi,þau telji systir sína og dóttir vera sjúka en bera engan kala til hennar,þetta var gott samtal þarna og við verðum bara að vona að þetta verðir rannsakað allra hluta vegna,af lögreglu þar átti malið alltaf heima sagði ég strax,og fleiri/En bíðum og sjáum hvað setur/Halli gamli


mbl.is Heimilislífið hefðbundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fyrir mér sagði hann ekkert sem kastaði rýrð á það sem Guðrún Ebba hefur sagt.  Sorrý mér fannst þetta allt frekar ótrúverðugt og í reynt að klóra í bakkann til varnar fjölskyldunni, sem er raunar skiljanlegt, en eigi að síður ótrúverðugt.  Minnti mig á köflum á föður sinn sem talaði af festu í viðtölum meðan hann laug eins og hann var langur til.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.11.2011 kl. 20:50

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ég er ekki eins  viss og þú Ásthildur?,en skoðum málin,tek mark á allatíð: að það er engin sekur fyrr en sekt er sönnuð!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 7.11.2011 kl. 21:00

3 identicon

Sammála þér Haraldur.

-það er enginn sekur fyrr en sekt er sönnuð.-

Jóhanna (IP-tala skráð) 7.11.2011 kl. 21:25

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Í þessari setningu ( það er eingin sekur fyrr en sekt er sönnuð) er staðreyndar villa. Því að þegar sönnunin er fundin þá kemur í ljós að við komandi varð sekur þegar hann framkvæmdi verkið.  Menn ættu að hætta að nota þessa heimskulegu setningu í tíma ótíma því hún er villandi. 

Það er svo annað mál að dómstólar eiga ekki að geta dæmt mann nema að sekkt hans sé sönnuð. 

Presturinn sonur Ólafs Skúlasonar sakar systur sína sem er tólf árum eldri, án þess að hún hafi sakað hann.  Dómarnir falla því hvað sem heimildum dómstóla líður,  Það friðar vonandi einhverja.       

Hrólfur Þ Hraundal, 7.11.2011 kl. 22:07

5 Smámynd: Anna Guðný

Það er nefninlega eitt sem ég hef aldrei skilið, ekki bara í þessu máli heldur svona yfirleitt. Alltof margir sem virkilega halda að það sem "þau trúa" hljóti að vera sannleikurinn. Og blása þessa skoðun svo út og hafa í raun ekkert fyrir sér annað en "trú". Síðan kemur niðurstaðan. Hún er ekki alltaf eins og þessar manneskjur "trúa". Þá er of seint að taka til baka ljótu orðin en sárin eru eftir.

Tek það fram að ég er alls ekki að dæma  neitt í þessu máli en mér finnst allof algengt.

Anna Guðný , 7.11.2011 kl. 22:35

6 identicon

Hættið nú þessu helv þvælu; Það er löngu ljóst og sannað mál að biskup var illmenni/nauðgari og fáráðlingur hinn mesti.

Það er bara á svona stundum sem maður vonar að helvíti sé til í alvörunni.. en svo hugsar maður um það sem stendur í biblíu og sér að biskup myndi aldrei lenda þar.. því kristni er trú hinna ábyrgðarlausu: Menn geta nauðgað, myrt, gert hvað sem er.. svo lengi sem menn iðrast og segja að Sússi sé bestur.

Að auki telur biblían/Guddi að nauðganir séu fórnarlömbum að kenna, biblían vill að fórnarlömb nauðgana verði tekin af lífi, já eða látin giftast nauðgara sínum.

Það er hornsteinn íslands... að sumar græðgispúka mati

DoctorE (IP-tala skráð) 8.11.2011 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband