Litlar líkur á aukningu verðbólgu/Ekki mun ég trúa þessu,takið verðtyggingu af og þá gæti þetta skeð ef vilji er fyrir hendi!!!!

itlar líkur á aukningu verðbólgu Viðskipti | mbl.is | 25.11.2011 | 12:01 Greining Íslandsbanka telur ólíklegt að verðbólgan á fjórða ársfjórðungi nái því að fara upp í 5,6% líkt og Seðlabankamenn spáðu í Peningamálum í byrjun mánaðar, enda yrði vísitalan að hækka um 1,3% í desembermánuði ef það ætti að ganga eftir og tólf mánaða verðbólgan að stökkva upp í 6,2%. „Verðbólguþróun síðustu mánaða ber þess merki að þrýstingur á verðlag hefur minnkað talsvert frá fyrri hluta ársins. Samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofunnar stóð vísitala neysluverðs (VNV) í stað á milli október og nóvember. Er þessi útkoma aðeins undir væntingum á markaði en opinberar spár höfðu reiknað með 0,1% hækkun. Skekkjan í spá okkar felst einna helst að við höfðum reiknað með minni lækkun á mat- og drykkjarvöru í mánuðinum, en á móti vegur að húsnæðisliðurinn er að hækka nokkuð umfram það sem við bjuggumst við. Er tólf mánaða verðbólga nú 5,2% en hún mældist 5,3% í október," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Greining telur að Seðlabankinn muni hinsvegar væntanlega benda á að kjarnaverðbólga hefur haldið áfram að aukast. „Þannig var verðbólga í nóvember 4,6% samkvæmt kjarnavísitölu 3 og hefur hún aukist stöðugt frá áramótum á þennan kvarða. Seðlabankinn horfir talsvert til þróunar þessarar vísitölu, en í henni eru sveiflukenndir liðir á borð við landbúnaðarvörur, eldsneyti, opinbera þjónustu og vaxtabreytingar í húsnæðislið eru undanskildir."///Við erum orðin þreitt á þessumeð verðbólguspár!! það er verðtryggt og allt með axalbönd og belti!! en það er er hvort eð er neikvæðir vextir og þessa vegna bara verðtryggingu af,sem fyrst ekki spurning,við bara borgum vextina aðeins hærri en ekki okurvexti!!! allavega þannig að það borgi sig að spara,sem það gerir ekki i dag!!!!auðvitað er þetta svolitið erfitt en mögulegt samt/Halli Gamli
Seðlabanki Íslands.
mbl.is Litlar líkur á aukningu verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband