Alltaf má fá annað föruneyti/það er nú það:auðvitað heilbryggðast að gera!!!

Alltaf má fá annað föruneyti Innlent | mbl.is | 27.11.2011 | 20:47 „Ríkisstjórnin hefur sjaldan staðið veikar en einmitt núna,“ segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri. Hann telur væringar milli stjórnarflokkanna fordæmalitlar og nú reyni á lagni forystumanna ríkisstjórnarinnar að lempa mál. Á föstudag ákvað Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að synja ósk Kínverjans Huang Nubo um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og á laugardag voru birtar á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins punktar starfshóps á vegum Jóns Bjarnasonar ráðherra um breytingar á kvótakerfinu. Þær mælast illa fyrir en þó ekki síður framganga ráðherrans sjálfs, sem þykir ekki vera í samræmi við markaða stefnu. „Í stjórnmálum er þekkt að menn spila oft frítt á síðari hluta kjörtímabils eða þegar kosningar nálgast. Atburðarás helgarinnar ber svip af þessu; menn reyna eftir megni að skapa sér sérstöðu,“ segir Birgir sem telur ósennilegt að væringarnar nú leiði til stjórnarslita á allra næstu dögum. Hitt sé þó ljóst að veruleg þreyta sé komin í samstarf ríkisstjórnarflokkanna og mál geti því þróast á ýmsa vegu. Báðir stjórnarflokkarnir hljóti því að hugsa í anda þess sem skáldið kvað, að alltaf megi fá annað skip og annað föruneyti.////Við sem ekki erum fræðingar á þessu sviði, erum samt sammála Birgir fræðingi um þetta það er komin löngu i þetta þvílík þreita að það hálfa væri nóg!!! en límið er sterkt að að halda völdum og það skiljanlegt einnig,en það   þegar allat er komið uppíloft bara eitt ,það verður að ske eitthvað rótækt og það verður fljótt /Halli gamliLeiðtogar ríkisstjórnarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir...
mbl.is Alltaf má fá annað föruneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband