Varað við vonskuveðri77Tökum þetta alvarlega ekki spurning!!!!!

Varað við vonskuveðri Innlent | mbl.is | 28.11.2011 | 15:59 Veður fer mjög versnandi á Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi. Þar verður glórulaus bylur fljótlega í kvöld og allt að 20-25 m/s á Ströndum, við Húnaflóa og í Skagafirði í nótt. Einnig er hríð á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og suður í Borgarfjörð og athygli vakin á því að víða er nokkur lausamjöll fyrir og því kóf um leið og tekur að blása, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Von er á vindhviðum í Staðarsveit og eins á Kjalanesi undir morgun. Suðvestanlands og á Suðurlandi frystir í kvöld en vegir þar eru nú blautir og því von á ísingu þar. Suðaustanlands og á Austfjörðum frystir einnig í nótt eða snemma í fyrramálið. Það eru hálkublettir á Hellisheiði og hálka í Þrengslum. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á Suðurlandi og Reykjanesi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á öllum leiðum. Þæfingur og stórhríð er á Klettshálsi og þar er ekkert ferðaveður. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja, snjókoma eða éljagangur á flestum leiðum. Flughált er í Þistilfirði og í Vopnafirði. Á Austurlandi er hálka og snjóþekja á flestum leiðum. Á Suðausturlandi flughált er frá Höfn að Kvískerjum, á öðrum leiðum er hálka.////þetta er aðvörun og við tökum henni alvarlega og megum ekki annað!! það er komin  tími á að að við förum eftir þessu og þá þetta hafi einkverntíman brugðist verum við að hliða kalli og ger allt sem hægt er að vera litið á ferðinni///Halli gamliMynd 422775
mbl.is Varað við vonskuveðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband