Vita ekki um hvað gögn er að ræða///sama þessir menn hafa verið yfirheyrðir áður,og vita flestir hvor um annan,en gæsla er það sem þarf!!!

Vita ekki um hvað gögn er að ræða Innlent | mbl.is | 1.12.2011 | 13:40 „Sakborningar vita ekki hvaða gögn lögreglan er með í höndum og því mikilvægt að þeir geti ekki borið sig saman og samræmt framburð,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari þegar hann er spurður hvers vegna farið sé fram á gæÓlafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. sluvarðhald yfir mönnum sem tengjast Glitnis-rannsókninni. Héraðsdómur úrskurðaði í gær þrjá menn í gæsluvarðhald. Ólafur sagði að tveir þeirra hefðu kært úrskurðinn til Hæstaréttar, en hann sagði ekki útilokað að kærurnar yrðu þrjár. Ólafur sagði að yfirheyrslur hefðu staðið fram að miðnætti í gær og þær hefðu haldið áfram í morgun. Hann vill ekki greina frá því hversu margir hafi verið yfirheyrðir, en stór hópur manna hjá embættinu sinnti rannsókn þessara mála. Ólafur sagði að menn færu að sjálfsögðu ekki fram á gæsluvarðhald nema ástæða væri til þess. Níu af tíu málum sem tengjast Glitni hefðu verið kærð til embættis sérstaks saksóknara á þessu ári og yngsta málið væri aðeins nokkurra vikna gamalt. Ólafur sagði að þegar menn væru að undrast að verið væri að hneppa menn í gæsluvarðhald löngu eftir eftir bankahrun yrði að hafa í huga að sakborningar vissu ekki hvaða gögn rannsakendur væri með í höndunum. Þeir vissu því ekki hvaða spurningum þeir kæmu til með að þurfa að svara. Það væri mikilvægt að geta komið í veg fyrir að sakborningar gætu samræmt framburði en það gæti augljóslega spillt fyrir rannsókninni. Þess vegna væri farið fram á gæsluvarðhald meðan verið væri að yfirheyra vegna þessara mála./////Auðvitað bara gæsla og ekkert annað,það er ekki annað ,þetta ströggl um að það sé ekki þörf er bara ekki rétta það ber að gera þetta svona,og vonum bar að þetta beri árangur og við fáum til baka þetta fé sem þeir tóku ófrjálsri hendi,og vel það og þeir einnig segtaðir og varhald,við erum búin að fá nóg af þessum köllum og vel það!!!saksónari með sina 80 starfsmenn eru komnir i gang vel og það gott/Halli gamli 
mbl.is Vita ekki um hvaða gögn er að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045593

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband