Verðmerkingum hætt og verð hækkar/ maður bloggaði um þetta á sinum tima,að þetta mundi auðvitað hækka allt!!!!

Verðmerkingum hætt og verð hækkar Innlent | mbl.is | 22.12.2011 | 14:46 Neytendasamtökin velta fyrir sér hvort bann við forverðmerkingum á kjöti kunni að skýra að hluta þá miklu verðhækkun sem hefur orðið á kjöti milli ára. „Þegar verðkönnun á jólamatnum sýnir allt að 41% hækkun á milli ára hljóta að 
Mynd 550408
vakna spurningar hjá neytendum. Í könnun ASÍ sem birt var í fyrradag kemur fram að miklar verðhækkanir hafa orðið m.a. á kjöti og langt umfram eðlilegar forsendur. Það sem vekur þó sérstaka athygli er að hækkanir eru mjög mismunandi frá einni verslunarkeðju til annarrar," segir á vef Neytendasamtakanna. Þannig hækkar birkireykt úrbeinað hangilæri frá SS um 41% hjá Hagkaupum en lækkar í verði um 7% hjá Nettó. Skýringar verslana eru að miklar hækkanir hafi orðið á kjöti milli ára eða á bilinu 20-45%. Hagfræðingur Bændasamtakanna sagði hinsvegar í viðtali að verð til bænda hafi hækkað um 17%. Þar er væntanlega vísað til verðhækkana á lambakjöti, segir enn fremur á vef Neytendasamtakanna. „Fyrr á þessu ári voru forverðmerkingar (verðmerkingar kjötiðnaðarstöðva) bannaðar á kjötvörum. Neytendasamtökin hafa óskað eftir því að stjórnvöld rannsaki hvaða áhrif þessi ákvörðun hafi haft á verð til neytenda. Neytendasamtökin ítreka hér með þá ósk sína. Það er óásættanlegt ef milliliðir (kjötiðnaðarstöðvar og/eða verslanir) hafi nýtt sér þessa breytingu til að hækka álagningu sína. Ef svo er hefur bann við forverðmerkingum algjörlega misst marks en tilgangurinn var einmitt að auka verðsamkeppni með þessa vöru sem myndi hugsanlega leiða til lægra verðs til netyenda. Það er því eðlilegt að verðmyndun á kjötvörum verði rannsökuð vandlega. Einnig er eðlilegt að fram komi hvernig einstakir aðilar á markaði hafi hagað verðlagningu sinni síðan samkeppnisyfirvöld bönnuðu forverðmerkingar," segir á vef Neytendasamtakanna.//////þetta gefur augaleið og okkur sem kvörtuðum var bara gefi langt nef!!! en það er vist að þessu er um að kenna engu öðru það er svo að myndist einhver hola i að stela segja bara að stela þetta er ekkert annað,þó svo álgning sé frjáls,er þetta bara þjofaður,við getum,  jú reyndar reiknað einnig neitendur en ,það virðist ekki vera að þeir haldi það,!!! sem á þetta leggja!!! það bara bíður uppá þessa svikamillu///Halli gamli

mbl.is Verðmerkingum hætt og verð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband