Náttúrugripasafnið fari í Perluna/Mjög svo spennandi hugmynd !!!!!

Náttúrugripasafnið fari í Perluna Innlent | mbl.is | 16.2.2012 | 19:11 Fimm félagasamtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar og fagfélög kennara hafa sent stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og mennta- og mennin
Mynd 591774
garmálaráðherra áskorun vegna hugmynda um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Að áskorununum standa Hið íslenska náttúrufræðifélag, Landvernd, Samlíf - Samtök líffræðikennara, Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi og Félag raungreinakennara. Samtökin hvetja ráðherra og stjórn OR „eindregið til þess að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Í því skyni láti hún gera úttekt á því hversu vel húsnæðið á Öskjuhlíðinni henti slíkri starfsemi og hvaða leiðir skulu farnar svo eignarhald þess færist til ríkisins. Náttúruminjasafn Íslands er lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og á að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hefur verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir. Nú er svo komið að það á engan samastað fyrir sýningastarfsemi sína og safnmunir eru geymdir ofan í kössum. Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að.“//////Þetta er i raun bara skemmtileg ,og áhugaverð hugmynd ,og ekki dónalegt að hafa þetta musteri undir slýkt og mikið meira sem þarna gæti verið fróðlegt og skemmtilegt,setjum þetta af stað og skoðum með heilum hug/Halli gamli

mbl.is Náttúrugripasafnið fari í Perluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn. Þetta er það besta sem ég hef heyrt lengi. Þetta hljómar sem góð hugmynd, í mínum huga. Það er tímabært að fara að sýna fólki ríkidæmi náttúrunnar. Skólarnir geta svo haft aðgang að safninu, til að kenna börnum og fullorðnum um safngripina. Þetta er bara flott, frá mínu sjónarhorni séð.

Áhugasamir ferðamenn verða svo að stórum hluta til burðarásinn í kostnaði og viðhaldi á safninu. Ferðamenn vilja skoða söfn, á ferð sinni um heiminn. Þetta yrði gott fyrir alla.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.2.2012 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045617

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband