Björn sakar RÚV um áróður//Það geri ég einnig ekki spurning!!!!!

Björn sakar RÚV um áróður Innlent | mbl.is | 25.3.2012 | 23:08 Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- og 
Björn Bjarnason.
Kirkjumálaráðherra, segir framleiðendur sjónvarpsþáttarins Landans í Ríkissjónvarpinu hafa bitið á agnið og endurbirt áróður um ESB í þætti kvöldsins í sjónvarpinu. Orðrétt skrifar Björn á vef Evrópuvaktarinnar: „Evrópustofa er líklega farin að láta að sér kveða gagnvart RÚV og stjórnendur Landans hafa bitið á agnið eins og sást í þættinum að kvöldi sunnudags 25. mars þegar ESB-áróðri sem braut algjörlega í bága við almennt efni þessa vinsæla þáttar var troðið inn í hann. Er með ólíkindum að stjórnendur RÚV og ritstjórn Landans taki í mál að flytja slíkt efni í þættinum. Það ætti að gera kröfu til þess að þættir sem þessir séu merktir kostunaraðila svo að áhorfendur átti sig á því hvers kyns er. Furðulegt er að fylgjast með viðbrögðum við gagnrýni af þessu tagi þegar látið er eins og áróður fyrir aðild Íslands að ESB sé sambærilegur við kynningarstarf vegna alþjóðasamtaka þar sem Íslendingar eru þegar virkir þátttakendur. Markmið ESB-áróðursins er að búa í haginn fyrir fulltrúa ESB í aðildarviðræðunum, létta þeim róðurinn við að ná samkomulagi í samræmi við ákvæði ESB-löggjafarinnar. Tilgangurinn er einfaldlega sá að slæva andstöðu Íslendinga og kynningin í Landanum snerist um byggðastyrki. Þeir hafa löngum verið nefndir sem agn af ESB-aðildarsinnum.“ Hægt er að horfa á umræddan þátt hér.////Þarna erum við sammála við Björn Bjarnason og vel það,það erum við sko ekki alltaf eins og gengur!!!skoðanir manna í sama flokki eru ekki allar eins,sem vera ber!!! en þarna erum við sammála ,og einnig um framboð Þóru Arnórsdóttur til Forseta á svona viðsjárverðum tímum,það má ekki taka það þannig hja´mér að hún sé slæm manneskja alls ekki,en það eru  þeir tímar framundan að það þarf að vera klár maður og reyndur sem Forseti okkar þegar á að koma okkur inn i ESB hvað sem tautar og raular,svo kosningar og þær geta skapað margt og þar getur komið til þarfa reynslumikils Forseta,annað er ekki hægt að segja okkur!!!!!/Halli gamli

mbl.is Björn sakar RÚV um áróður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En ef þetta væri áróður gegn ESB.. væri það í lagi.  BB ætti nú að sjá sóma sinn með að láta ísland og íslendinga í friði, nægur er skaðinn sem þessir menn hafa valdið.

Með forseta.. við höfum ekkert að gera með forseta.. tökum forsetalaun og kostnað, setjum aurinn í að hjálpa fátækum/sjúkum.

Sá sem býður sig fram sem forseta.. eða biskup.. slíkt fólk eru ekkert nema snobbaðar afætur og sníkjudýr á samfélaginu

DoctorE (IP-tala skráð) 26.3.2012 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband