Tilefnislausar aðgerðir//Allavega meðan ekkert sannast,eða er það ekki???

Tilefnislausar aðgerðir Innlent | mbl.is | 27.3.2012 | 18:42 „Hjá Samherja hefur í einu og öllu verið farið að lögum hvort sem það varðar gjaldeyrisviðskipti eða önnur málefni. Þessar aðgerðir Seðlabankans í 
Frá húsleit hjá Samherja á Akureyri í dag.
 dag eru tilefnislausar og hljóta að vera byggðar á röngum upplýsingum eða öðrum ástæðum sem okkur er ekki kunnugt um hverjar eru.segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., í yfirlýsingu sem send hefur verið til fjölmiðla. Eins og mbl.is hefur fjallað um var gerð húsleit hjá Samherja í dag af gjaldeyrisdeild Seðlabanka Íslands og embætti sérstaks saksóknara vegna gruns um brot gegn lögum um gjaldeyrishöft. Fram kemur í yfirlýsingunni að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi engar skýringar eða upplýsingar fengið frá Seðlabankanum vegna aðgerðanna. Haft er eftir Þorsteini í yfirlýsingunni að hann skori á bankann að leggja fram rökstuðning fyrir húsleitinni svo Samherji geti lagt sitt af mörkum til þess að veita þær upplýsingar sem hann vilji fá í hendur „og um leið freistað þess að takmarka tjón okkar af þessari harkalegu aðgerð“. Yfirlýsingin í heild: „Hjá Samherja hefur í einu og öllu verið farið að lögum hvort sem það varðar gjaldeyrisviðskipti eða önnur málefni. Þessar aðgerðir Seðlabankans í dag eru tilefnislausar og hljóta að vera byggðar á röngum upplýsingum eða öðrum ástæðum sem okkur er ekki kunnugt um hverjar eru“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf. Eins og fram hefur komið hefur gjaldeyrisdeild Seðlabanka Íslands staðið fyrir húsleit á skrifstofum Samherja hf. Forsvarsmenn félagsins hafa ekki fengið neinar skýringar frá Seðlabankanum á þessum aðgerðum. Samherji hefur lagt sig fram um að uppfylla allar kröfur Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti. Ítarlega hefur verið farið yfir alla verkferla með starfsmönnum bankans. Á síðasta ári heimsóttu þeir meðal annars höfuðstöðvar Samherja á Akureyri þar sem lögð voru fyrir þá öll þau gögn sem óskað var eftir. Engar athugasemdir bárust í kjölfar þessara samskipta. Samherji hf. er alþjóðlegt sölufyrirtæki með höfuðstöðvar á Akureyri. Fyrirtækið selur ekki einungis eigin afurðir heldur einnig afurðir fjölmargra erlendra fyrirtækja. Sú starfsemi er margþætt og er orðin flóknari með tilkomu gjaldeyrishaftanna. Svo virðist sem Seðlabanki Íslands hafi átt í erfiðleikum með að átta sig á þessum hluta starfsemi Samherja hf. Kann það að hluta til að skýra þessar sérkennilegu aðgerðir nú. Talsmaður Seðlabanka íslands hefur upplýst sérstaklega í fjölmiðlun í dag að aðgerðir bankans gegn Samherja byggist á „ábendingu starfsmanna Kastljóss“. Ljóst er að ekki er auðvelt fyrir Samherja að leiðrétta rangfærslur sem ekki liggja fyrir hverjar eru. Þó skal þess getið vegna yfirlýsingar Seðlabankans um heimildarmenn sína hjá Kastljósi að Samherja er kunnugt um að þátturinn hefur á undaförnum vikum talið sig vinna að rannsókn á útflutningi Samherja á karfa til Þýskalands. Er því rétt að víkja að þessu hugsanlega viðfangsefni þáttarins og setja það í rétt samhengi: Samherji selur mikið magn afurða sinna í gegnum sölufyrirtækin sín, Ice Fresh og Seagold. Verðlagning í þeim viðskiptum er í alla staði rétt og eðlileg og engum gjaldeyri haldið eftir sem skila ber. Karfaviðskiptin sem sjónvarpsþátturinn og Seðlabankinn virðast telja tortryggileg nema um það bil 0,1% af veltu Samherja. Þau viðskipti svo og öll önnur viðskipti Samherja við dótturfélög sín eru fullkomlega lögleg og í sama farvegi og þau voru löngu fyrir gjaldeyrishöftin og Seðlabankinn hefur kynnt sér. Eftir þessum reglum hefur verið farið í hvívetna. „Svo harkalegar og ómálefnalegar aðgerðir af hálfu Seðlabanka Íslands hljóta að vera einsdæmi og lýsum við fullri ábyrgð á hendur þeim sem að þeim standa,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf. „Ég skora á Seðlabankann að leggja fram rökstuðning sinn fyrir húsleitinni til að við getum lagt okkar af mörkum til að upplýsa Seðlabankann um þá þætti sem hann vill fá skýringar á og um leið freistað þess að takmarka tjón okkar af þessari harkalegu aðgerð.“
 
/////////////það er ekki ættlun mín að verja svik og pretti als ekki!!En að slá þessu svona upp án sannana,er kríminalt að mínu mati,og mjög alvarlegt!!! en tímasettningin einnig fiskveiðifrumvarpið sett fram!!! og Kastljós með þátt sama daginn um ólöglegt athæfi Samherja,það er auðvelt að búa til samsæriskenningar Þarna!!!!, og það er það bara þar til sannað er að þarna hafi verið gert eitthvað ólöglegt!!!!og það mun koma fram,engin spurning,en þetta teymi þarna Seðlabanki -Ríkksstórn-og RÚV er alvarlega undir grun um að segja ekki satt!!!!/Halli gamli

mbl.is Tilefnislausar aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband