Allt að 100 þúsund farþegar//Mjög svo gott mál fyrir okkur,vonadi fólk sem þessa nýtur, og eyðir pening hér!!!!!

Allt að 100 þúsund farþegar Innlent | Morgunblaðið | 10.5.2012 | 23:35 Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins leggst að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík 17. maí næstkomandi, á uppstigningardegi. Í kjölfarið munu hátt í 60 skip koma til borgarinnar til hausts í alls 80 boðuðum skipakomum. Skipin taka alls um 100 þúsund farþega, sem er aukning frá síðasta ári. Þar er á ferð Crystal Serenity, sem er í heimsreisu og kemur hingað frá St. John's í Kanada. Sjaldgæft er að skemmtiferðaskipin komi hingað úr vesturátt enSkemmtiferðaskipið Costa Pacifica við skarfabryggju  yfirleitt koma þau frá meginlandi Evrópu. Í kjölfarið munu hátt í 60 skip koma til borgarinnar til hausts í alls 80 boðuðum skipakomum. Skipin munu sem fyrr koma á fleiri hafnir um landið, eins og til Grundarfjarðar, Ísafjarðar, Akureyrar, Seyðisfjarðar, Djúpavogs og Vestmannaeyja. Síðasta skipakoman til Reykjavíkur er 29. september nk. AZURA er risastórt skemmtiferðaskip. mbl.is/Ernir Að sögn Ágústs Ágústssonar, markaðsstjóra Faxaflóahafna, taka skipin í sumar alls um 100 þúsund farþega. Þetta er töluverð aukning frá síðasta ári þegar skipakomur voru 67 og farþegar yfir 70 þúsund. Skipakomur 2013 orðnar 65 Ágúst segir aukinn farþegafjölda sýna að skipin séu stöðugt að stækka en flestar hafa skipakomur til Reykjavíkur verið 83 fyrir fáum árum. Stærsta skip sumarsins, Celebrity Eclipse, er nærri 122 þúsund brúttótonn og kemur til Reykjavíkur 10. júlí. Stærsta skipið sem hingað hefur komið er um 116 þúsund tonn en til samanburðar má nefna að stærstu skip landsins; systurskipin Dettifoss og Goðafoss, eru ríflega 14 þúsund brúttótonn að stærð. Von er á enn stærra skemmtiferðaskipi hingað næsta sumar, Adventure of the Seas, sem er enn í smíðum og verður alls um 137 þúsund brúttótonn. Nú þegar eru boðaðar 65 skipakomur á næsta ári með um 90 þúsund farþega, og líklegt að þær tölur eigi eftir að hækka. Á undanförnum árum hefur þeim skemmtiferðaskipum fjölgað sem stoppa í Reykjavík yfir nótt. Ágúst segir þessa þróun halda áfram. Nú muni 23 stór skip eiga hér næturdvöl og farþegar þeirra geti orðið hátt í 30 þúsund talsins. „Þetta er ánægjuleg þróun og eykur viðskipti sem þessir farþegar skapa í landi,“ segir Ágúst en einnig er orðið meira um flug til Íslands til að skipta um farþega og áhafnir í skipunum. Fundur var í gær hjá þeim fjölmörgu aðilum sem koma að móttöku skipanna í sumar; eins og Faxaflóahafnir, slökkviliðið, Tollgæslan, ferðaþjónustufyrirtæki og umboðsmenn skipafélaganna. Að mörgu er að hyggja, að sögn Ágústs, því nú sé verið að taka á móti álíka mörgum farþegum á hafnarbakka á fjórum mánuðum og gert var á öllu árinu 1983 gegnum Keflavíkurflugvöll, þegar um 100 þúsund manns komu til landsins. Einna stærsti dagur sumarsins verður 18. júní þegar fjögur skip koma til Reykjavíkur. Áður hefur komið fram í Morgunblaðinu og víðar að skipin séu sex en Ágúst segir þau vera fjögur. Auk Skarfabakka, Miðbakka og Korngarðsúú þarf einnig að nýta Kleppsbakka þann daginn; höfn Eimskips.///////////þetta verður mikil búbót fyrr okkur ekki spurning!! en það þarf einnig mörg skip, til þessa bara að borga Skarfabakka,sem ekki notast nema við þessi skip!!!En þetta mun næstu ár skylda hagnaðu ekki spurning og skapar vinnu og gjaldeyrir/Halli gamli
mbl.is Allt að 100 þúsund farþegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband