Finnur fékk 68 milljónir í laun/Það er ekki furða að þarna hækkar daglega,Það Vantar Jóhannes á Markaðin,enda mun maður versla við hann,þegar hann byrjar!!

Finnur fékk 68 milljónir í laun Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 16:45 Finnur Árnason, forstjóri Haga, var með 68 milljónir í föst laun og árangurstengd laun á síðasta ári. Það gera rúmlega 5,6 milljónir á mánuði. Hann og nokkrir lykilstjórnendur fengu auk þess milljónir í greiðslur frá Eignabjargi, dótturfélagi Arion banka. Finnur fékk 43 milljónir í laun á árinu og 25 milljónir í árangurstengd laun. Guðmundur MaFinnur Árnason forstjóri Haga rteinsson fékk einnig 25 milljónir í árangurstengd laun, auk 32 milljóna í laun og hlunnindi. Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri fékk 8 milljónir í árangurstengd laun og 20,3 milljónir í laun og hlunnindi. Fram kemur í ársreikningnum að á síðasta ári samdi Eignabjarg ehf., sem á þeim tíma var móðurfélag Haga hf., við lykilstjórnendur Haga hf. um afhendingu á hlutafé í Högum hf. til stjórnendanna án endurgjalds. Samkomulagið var til uppgjörs á eldra samkomulagi við stjórnendur Haga hf. Nafnvirði hlutafjárins var 17,0 millj. og voru við undirskrift 7,7 millj. hlutir afhentir lykilstjórnendum en eftirstöðvarnar 9,4 millj. hluta voru afhentar í febrúar 2012. Lykilstjórnendur skuldbundu sig með samkomulaginu til að starfa fyrir Haga hf. til 30 . júlí 2012. Eignabjarg ehf. tók að sér að bera allar skattgreiðslur vegna samninganna. Heildarvirði samkomulagsins var metið um 344,3 millj. kr. en það er sú greiðsla sem lykilstjórnendur Haga fá greidd til viðbótar við föst launa, hlunnindi og árangurstengd laun. 530 milljónir greiddir í arð Hagnaður Haga á síðasta rekstrarári, 1. mars 2011 – 29. febrúar 2012, nam 2.344 milljónum króna. Stjórn Haga leggur til að greiddur verði út um 530 milljónir í arð til hluthafa./////Þetta er svifirðilegt að sjá,og hvar er nú hvörtunardeildin sem lagði Jóhannes og Son i einelti!!! þetta er svona og það sínir að menn hafa engu gleymt í þessum launaskalla eða hitt þá heldur!!Nú hættir maður að versla þarna!!Og geri það bara í Viðir á meðan, að Jóhannes er að hafa sig til að versla við okkur smælingjana/Halli gamli
mbl.is Finnur fékk 68 milljónir í laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varla ætlarstu til að fólk versli við Bónusræningjann aftur ?

Stálu hans félög ekki BILLJÓNUM ?

Hvað er að fólki ? er það SVONA fljótt að GLEYMA ?

Eða heldur fólk að pabbinn hafi ekkert vitað og með hreina samvisku ?

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 30.5.2012 kl. 18:50

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þekki þetta allt mjög vel !!og mun endregið versla við Jóhannes frumkvöðul lágs vöruverðs á Íslandi,þó svo Pálmi hafi verið á undan,sló Jóhannes honum við!!! hefi engu gleymt als ekki/Kveðja til þín Birgir!!

Haraldur Haraldsson, 30.5.2012 kl. 19:11

3 identicon

Það er ekki furða þótt okkur sé ekki við bjargandi.

Þeir sem munu versla við Jóhannes ( ef hann opnar nýja búð) eru að samþykkja rán Jón Ásgeirs og félaga (meðal annar Gaums sem Jóhannes stýrði)á milljörðum króna !

Það fólk á að skammast sín !

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 30.5.2012 kl. 21:03

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það var nú svo að þegar vest var látið með Haga að maður sá menn í Bónus sem vildi ekki láta sjá sig ,það er samt!!,það er svo að þeir hefðu átt að skammast sín,kannski vart þu einn af þeim???Birgir!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 31.5.2012 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045589

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband