Liggur samningsafstaðan fyrir?/Hvað er í gangi :allt til????

Liggur samningsafstaðan fyrir? Innlent | mbl | 27.6.2012 | 13:48 „Ísland verður reiðubúið að uppfylla niðursÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. töður viðræðnanna,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, á blaðamannafundi í Brussel spurður að því hvort Íslendingar væru reiðubúnir að opna efnahagslögsögu sína fyrir sjómönnum frá Evrópusambandinu í viðræðum um inngöngu í sambandið. Össur sagði ennfremur að fyrst þyrfti að hefja viðræðurnar um sjávarútvegsmálin og takast á við vandamálin í þeim efnum og út úr því kæmi samkomulag sem Ísland myndi fara eftir. Hann lagði ennfremur áherslu á að sjávarútvegsmálin yrðu „erfitt vandamál“ og að viðræður um þau myndu taka tíma. Því þyrfti að hefjast handa sem fyrst við að takast á við þær. Össur tók þó fram að hann stefndi ekki að undanþágum (e. derogations) í þeim efnum. Hins vegar hefði sambandið alltaf sýnt hugkvæmni í því að finna klæðskerasaumaðar sérlausnir fyrir umsóknarríki. Þá sagði Össur fyrr á blaðamannafundinum að aðildarferlið yrði að byggjast á löggjöf Evrópusambandsins og engu öðru. Voru ummæli Össurar slitin úr samhengi? Össur sagði ennfremur á blaðamannafundinum að íslensk stjórnvöld væru reiðubúin að leggja fram samningsafstöðu sína í sjávarútvegsmálum eins og mbl.is hefur áður fjallað um. Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar síðastliðinn mánudag að líklega hefðu orð Össurar verið slitin úr samhengi í frétt evrópsku fréttaveitunnar Agence Europe sem mbl.is vísaði til en í frásögn hennar síðastliðinn föstudag kom meðal annars fram að ráðherrann hefði sagt á blaðamannafundinum að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum væri tilbúin. Í frétt Bylgjunnar kom jafnframt fram að hugsanlega hefði í frétt Agence Europe verið átt við samningsmarkmiðin í ályktun meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis sem fylgt hefði þingsályktunartillögunni um að sótt yrði um inngöngu í Evrópusambandið í júlí 2009 og lengi legið fyrir. Össur sagði við Bylgjuna að vinna við samningsafstöðuna væri enn í gangi en að sú vinna væri þó tiltölulega langt komin. Hann vissi þó ekki nákvæmlega hvenær henni yrði lokið. Myndskeið frá fundinum á heimasíðu ESB Ummæli Össurar á blaðamannafundinum verða þó vart skilin öðruvísi en svo að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum hafi þá verið tilbúin og ekkert að vanbúnaði að leggja hana fram. Á heimasíðu Evrópusambandsins er að finna myndskeið frá fundinum þar sem hlýða má á ummæli Össurar en þau voru hluti af svari við fyrirspurn erlends blaðamanns um sjávarútvegsmálin í tengslum við umsókn Íslands og þann árangur sem náðst hefði í þeim málaflokki (sjá hér að neðan, spurning blaðamannsins og síðan svar Össurar hefst á 10:50). „En sá árangur sem ég vísaði til er að stöðuskýrsla Evrópusambandsins er á réttri leið. Hún hefur þegar hafið vegferð sína í gegnum stofnanir Evrópusambandsins. Heima á Íslandi höfum við einnig náð verulegum árangri. Ég á við að við erum reiðubúin að leggja fram samningsafstöðu okkar (e. „we stand ready to put forth our negotiating position“) og við iðum í raun í skinninu að klóra yfirborðið á vandamálinu [þ.e. sjávarútvegsmálunum],“ sagði Össur í svari sínu. Liggur samningsafstaðan í sjávarútvegi fyrir? Enginn af viðmælendum Morgunblaðsins síðastliðinn mánudag kannaðist við að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum lægi fyrir en þar var rætt við Gunnar Braga Sveinsson, þingflokksformann Framsóknarflokksins sem sæti á í utanríkismálanefnd Alþingis, Kolbein Árnason, formann sjávarútvegshóps í samninganefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu, og Vilhjálm Egilsson sem situr í sjávarútvegshópnum. Hins vegar sagði Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, að vinnu við samningsafstöðuna væri „í raun lokið“ og málið hefði „svo bara þann gang sem það á að fara.“ Reynt var að ná í Össur vegna fréttarinnar en án árangurs. Þá sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, í samtali við mbl.is síðastliðinn laugardag að hún furðaði sig á þeim ummælum utanríkisráðherra í Brussel að samningsafstaðan lægi fyrir þar sem hún hefði ekki verið lögð fyrir utanríkismálanefnd þingsins. Össur sagði hins vegar í samtali við Bylgjuna að þegar samningsafstaðan væri tilbúin yrði hún „umsvifalaust“ kynnt nefndinni. Eftir stendur sú spurning hvort samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum liggur fyrir eða ekki. Þá er einnig ósvarað hvers vegna utanríkisráðherra sagði á blaðamannafundinum í Brussel síðastliðinn föstudag að samningsafstaðan lægi fyrir en sagði síðan að svo væri ekki í samtali við Bylgjuna um þremur sólarhringum síðar.///////Þetta er undarlegt svo ekki sé meira sagt að allt sé til reyðu að semja,eða er karlinn Össsur að flippa bara út alveg,eða er það Jóhann sem blífur þarna ,þetta er manni alveg óskyljanlegt!!!/Halli gamli
mbl.is Liggur samningsafstaðan fyrir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband