Frekar glaður að vera ennþá á lífi///Það má jú segja það!!!!!!

Frekar glaður að vera ennþá á lífi“ Innlent | mbl | 25.7.2012 | 22:37 Atli Viðar Gunnarsson, sextán ára Hafnfirðingur, var að slá gras er eitthvað þeyttist í hálsinn á honum með ógnarkrafti. Hann féll í jörðina við höggið og var fluttur á sjúkrahús þar sem í ljós kom að 3 cm bútur úr stjörnuljósi sat fastur djúpt í

Járnstykkið sést hér á röntgen-mynd sem tekin var af Atla í gær.

hálsi hansFrekar glaður að vera ennþá á lífi“

Ég hélt að þetta væri steinn, en ég datt í jörðina við höggið og fann mikið til.“ Í ljós átti eftir að koma að 3 sentímetra stjörnuljós hafði skotist djúpt inn í háls Atla og sat þar fast. Bróðir Atla Viðars kom hlaupandi að og sá að það var gat undir hökunni á honum. Bræðurnir brunuðu í kjölfarið upp á slysadeild. „Fyrst þegar ég kom þangað vildu þau ekki taka mynd af þessu og ætluðu að senda mig heim.

En af því að ég fann svo til, sem þau skildu ekkert í af því við héldum að þetta hefði verið steinn sem fór í mig, var loks ákveðið að taka mynd.“ Atli Viðar á sjúkrahúsinu í dag, eftir aðgerðina þar sem járnbúturinn var fjarlægður.

Það ótrúlega kom svo í ljós við myndatökuna að þriggja sentímetra langt stykki var fast inni hálsinum á Atla Viðari. „Þetta var sem sagt stykki úr stjörnuljósi sem sláttuvélin hafið skotið inn í hálsinn á mér, en stykkið fór í gegnum safnpokann á vélinni og þaðan í mig,“ segir Atli Viðar. Járnið hafði farið svo djúpt inn í hálsinn á Atla að ekkert af því stóð út og gatið á hálsinum því einu ummerkin. „Stykkið var eins og krókur í laginu og fast undir tungunni og því ekki hægt að toga það út. Þess vegna þurfti ég að fara heim og fór ekki í aðgerð fyrr en núna í morgun,“ segir Atli

. En í aðgerðinni var stykkið skorið út úr hálsi hans. Járnbúturinn var um 3 sentimetrar að lengd. En hvernig leið Atla í gær á meðan hann beið eftir að komast í aðgerðina í morgun? „Það var vissulega óþægileg tilfinning að vita af þessu inni í hálsinum, ég viðurkenni það,“ segir hann. „Það var líka frekar óþægilegt að sjá röntgen-myndina af þessu fyrst.“ Atli Viðar vill brýna fyrir fólki að hreinsa til í görðum sínum eftir áramót og fjarlægja stjörnuljós sem þar kunna að liggja. „Kraftmikil sláttuvél getur léttilega þeytt hlutum á mörg hundruð kílómetra hraða í þann sem er að slá.“ „Svo heppinn að það er ekki fyndið!“ Og hann telur sig heppinn að ekki fór verr.

„Ef þetta stykki hefði farið þremur sentímetrum neðar inn í hálsinn á mér væri ég lamaður í dag,“ hefur Atli Viðar eftir læknum sínum. „Ég er ótrúlega heppinn og er frekar glaður að vera ennþá á lífi, ég trúi þessu eiginlega ekki ennþá. Ég er svo heppinn að það er ekki fyndið!“ „Ég á erfitt með að kyngja eftir aðgerðina en á vonandi eftir að ná mér að fullu,“ segir Atli. Foreldrar Atla Viðars, Gréta Jónsdóttir og Gunnar Ingibergsson, eru að vonum ánægð að ekki fór verr. „Þau eru ekkert smá ánægð,“ segir Atli. Hér má sjá járnstykkið og hvar það var í hálsi Atla Viðars. Atli Viðar Gunnarsson telur sig heppinn að ekki fór verr er hann fékk stjörnuljósið í hálsinn.

/////Þetta fór vel og betur en á horfist,svona má oft verða stutt milli heims og heljar!!! en það ber að gleðast að ekki fór ver,Guðs mildi það///Halli gamli


mbl.is „Frekar glaður að vera ennþá á lífi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045618

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband