Aukin hjátrú eftir hrun////Hún getur bara verið hgóða stundum,fari hún ekki úr böndum!!

Aukin hjátrú eftir hrun Innlent | mbl | 29.7.2012 | 11:56 Hjátrú Íslendinga hefur aukist eftir hrun samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Fjólu Daggar Helgadóttur sálfræðings. „Það er líkt og Íslendingar sæki styrk í hjátrúna í erfiðum aðstæðum,“

segir Fjóla Dögg. Fjóla Dögg fékk nýlega birta grein í vísindatímaritinu Journal of Obsessive-Compulsive and Related Disorders um rannsókn sína á hjátrú Íslendinga samanborið við Ástrala fyrir hrun. Niðurstöður samanburðarrannsóknarinnar leiddu í ljós að Íslendingar voru mun hjátrúarfyllri en Ástralir á árunum rétt fyrir hrun og að hjátrú hefur þar að auki náin tengsl við áráttu- og þráhyggjuröskun. Fjóla vinnur um þessar mundir að rannsókn sem sýnir fram á að hjátrú Íslendinga hefur aukist eftir hrun, sem er að hennar sögn í takt við þróun í löndum þar sem efnahagshrun hefur átt sér stað. Hún starfar við sálfræðimeðferðir og rannsóknir í Oxford háskóla. „Það er líkt og Íslendingar sæki styrk í hjátrúna í erfiðum aðstæðum,“ segir Fjóla Dögg Helgadóttir klínískur sálfræðingur. „

Efni greinarinnar tekur til rannsóknar sem ég framkvæmdi árið 2007, þegar allt var í blóma á Íslandi. Þá var ég stödd í Ástralíu og starfaði hjá sálfræðirannsóknarmiðstöð sem sérhæfði sig í áráttu-og þráhyggjuröskun. Rannsóknir okkar leiddu í ljós að mikil tengsl eru á milli áráttu-og þráhyggjuröskunar og að sterk og víðtæk hjátrú getur í einhverjum tilfellum kveikt þessa röskun hjá fólki,“ segir Fjóla Dögg.

„Á Íslandi er ákveðin hjátrú ofin saman við menninguna. Margir trúa til dæmis að látnir ættingjar fylgist með manni, að manneskjur geti átt svokallaðar „fylgjur“ og við notum heitið „undra- eða töfrahugsun“ yfir þessa tegund hugsunarháttar,“ segir Fjóla Dögg og bætir við að hjátrú geti einnig til að mynda verið trú á stjörnuspár, að hugboð séu möguleg og að draumar séu fyrirboðar um atburði framtíðar. Hjátrú sterkust í vanþróuðum löndum

Hún segir hjátrú af þessu tagi tengjast þróunarstigi landa. „Þegar ég segir frá þessum þætti menningarinnar á Íslandi reka útlendingar upp stór augu þar sem Íslendingar eru þjóð með hátt menntunarstig og gott velferðarkerfi. Óvenjulegt er hversu góðu lífi hjátrúin hefur lifað í gegnum þróun landsins því hjátrú er yfirleitt mest hjá vanþróaðri löndum,“ segir Fjóla Dögg. „Mín samanburðarrannsókn tók til háskólanema á Íslandi annars vegar og Ástralíu hins vegar. Niðurstöður hennar leiddu í ljós að var mun meiri á Íslandi auk þess sem einstaklingar sem höfðu sterka hjátrú höfðu fleiri einkenni áráttu-og þráhyggjuröskunar,“ segir Fjóla Dögg.

Efnahagshrunið hér á landi árið 2008 kveikti hjá Fjólu áhuga á að kanna hvort breyting hefði orðið á hjátrú Íslendinga fyrir og eftir kreppu. „Eftir hrun framkvæmdi ég samanburðarrannsókn sem leiddi í ljós að hjátrúarhegðun jókst eftir hrun á Íslandi. Ég lagði þá fyrir nákvæmlega sömu kvarða á milli ára og fann að áráttu- og þráhyggjuröskun þeirra sem hafa sterka hjátrú hafði aukist umtalsvert. Slík aukning er í samræmi við niðurstöður rannsókna sem voru framkvæmdar í Þýskalandi og Bandaríkjunum fyrir síðari heimstyrjöld,“segir Fjóla Dögg. Hún segir skýringuna mögulega liggja í andlegri líðan fólks í erfiðum aðstæðum. „

Það er líkt og Íslendingar sæki styrk í hjátrúna í erfiðum aðstæðum. Í einhverjum tilfellum getur hún líka vakið með fólki þá tilfinningu að þeir hafi stjórn á aðstæðum þegar sú er ekki raunin í veruleikanum,“ segir hún. „Það reynir þá að finna aðferðir til að hafa áhrif á umhverfi sitt, jafnvel þótt þær aðferðir brjóti í bága við gagnrýna hugsun. Hjátrúin er þá ákveðið haldreipi.“ segir Fjóla Dögg og bætir við að í því samhengi sé áhugavert að líta til þess hversu sterk hjátrú var meðal Íslendinga á árunum fyrir hrun þegar aðstæður Íslendinga voru almennt betri og því ef til vill minni þörf á haldreipi hjátrúar.

Tölvusálfræðingur tekst á við félagsfælni Fjóla hefur mörg járn í eldinum en doktorsverkefni hennar var þróun tölvumeðferðar þar sem boðið er upp á meðferð við félagsfælni. „Félagsfælnir einstaklingar eiga erfitt með að segja nei, taka alla aðra fram yfir sjálfa sig og eiga í miklum kvíða og jafnvel þunglyndi tengt því,“ segir Fjóla Dögg.

Hún hefur nú sett á laggirnar fyrirtæki sem sinnir meðferð af þessu tagi í gegnum netið. „Við höfum fært okkur í nyt þekkingu á skilvirkustu leiðunum til að komast yfir félagskvíða og þróað meðferð sem gagnast getur fólki hvaðanæva að úr heiminum,“ segir Fjóla Dögg en með verkefninu er ákveðið bil brúað milli klínískrar sálfræði og gervigreindar að hennar sögn. „Meðferð við félagsfælni er nú hægt að sækja hjá tölvusálfræðingnum og erum við að vinna að meðferð við áráttu- og þráhyggjuröskun um þessar mundir, sem mun líklega koma út á næsta ári,“ segir hún.////////Þetta hefur verið og enná ríkst í okkur Íslendingum, sétaklega okkur eldri og auðvitað læra börnin þetta ,þó mynna!! en það er enginfurða að þessu skuli hadið við margt hefur komið í ljós sem sannar ýmsa hluti sem hafa ræst i þessu ef ekki hefur verið tekið á þvi mark,svo auðvitða margir sem þarna bara gera grín af þesuu en þetta er og verður ekki spurning,og ég sé ekki að þetta sé að hverfa!!!///Halli gamli


mbl.is Aukin hjátrú eftir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn. Nú er verið að telja fólki trú um að skólafræðin og trúar-brögðin svikulu séu það eina sem trúandi er á.

Þeir sem sækja sinn styrk í trúna á eitthvað æðra og traustara heldur en skóla-fræðin og stjórnsýsluna, eru nú kallaðir hjátrúarfullir.

Ég hvet fólk til að trúa á innsæið og skynjunina, umfram fræðigreinar sérvalinna og misvandaðra álitsgjafa fjölmiðlanna svikulu og stjórnsýslukeyptu.

Ég væri ekki það sem ég er í dag, ef ég hefði hafnað minni skynjun, innsæi og trú á almættið algóða, sem ekki er raunverulega mögulegt að flokka.

Það þykir kannski ekki gott, þegar einstaklingar finna styrkinn í einhverju tryggara, traustara og raunverulegra en fjármála-heilaþvottakerfinu stjórnmálastýrða og ótrausta.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.7.2012 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband