Sóknargjöld verði ekki lögð á alla/Þetta er bara ólöglegt að gera,:aðskilnað strax!!!¨

Sóknargjöld verði ekki lögð á alla Innlent | mbl.is | 7.9.2012 | 12:55 Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna Alþingishúsið við Austurvöll og dómkirkjan.telur að íslensk stjórnvöld ættu ekki að leggja á sóknargjöld óháð því hvort viðkomandi er skráður í trúfélag eða kýs að standa utan þeirra.

Þá er fundið að því að lífsskoðunarfélög hafi ekki sama rétt til sóknargjalda og trúfélög. Þjóðkirkjusöfnuðir og skráð trúfélög eiga ákveðna hlutdeild í tekjuskatti, samkvæmt lögum um sóknargjöld.

Ríkissjóður skilar af óskiptum tekjuskatti tiltekinni fjárhæð sem rennur til trúfélaganna. Í ár er upphæðin 701 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri. Ríkissjóður heldur hins vegar eftir sömu upphæð fyrir þá sem standa utan trúfélaga.

Mannréttindanefndin lítur svo á að með því greiði þeir ríkinu sóknargjöld og í nýlegu áliti hennar segir að stjórnvöld ættu að tryggja, að sóknargjöld verði ekki lögð á þá sem standa utan trúfélaga.

Á vefsvæði Vantrúar er vitnað í upptökur af nýlegu aukakirkjuþingi þar sem fóru fram umræður um sóknargjöld. Þar var meðal annars álit mannréttindanefndar SÞ til umræðu og fyrirkomulag innheimtu sóknargjalda hér á landi.

Sú hugmynd var viðruð að trúfélögin gætu sjálf séð um að innheimta sóknargjöldin. Benti þá Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, á að ef fólk færi að hagnast á því að vera ekki í trúfélagi myndi það leiða til þess að enn fleiri skráðu sig úr þjóðkirkjunni.///////Þessi mál eru alltaf í brennidepli og varða það þar til lagað verður!!!!Það ber að fara eftir þessu og það hefst nátturlega með algjörum aðskilnaði Ríkis og Kirkju,þá T.D. gæti Ríkið bara rukkað þá sem tilheyra trúfelögum alla og lífskoðunarfélögum jafnt,það eigum við bara inni það er ekki spurning og hækka gjöldin og láta kirkjuna lifa af þvi annað ekki/Halli gamli


mbl.is Sóknargjöld verði ekki lögð á alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Leggja þessa kirkju af sem fyrst.. fáránlegt að ég og aðrir utan þessarar trúar séum þvingaðir í að borga fyrir ruglið... Ísland verður að athlægi um heim allan... síðasta ríkið sem kúgaði almenning til að borga kirkjunni

DoctorE (IP-tala skráð) 7.9.2012 kl. 13:15

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli. Átti ekki kirkjan að snúast um skilyrðislausan náungakærleika, en ekki um gráðuga trúboða sem komast upp með að misnota fólk og blekkja, án þess að kerfið taki á brotum þeirra?

Meðan þessi svokallaða kirkja snýst um peninga, er ekki pláss fyrir skilyrðislausan náungakærleika innan þeirrar stofnunar.

Það er engin  móðir Teresa  innan veggja skattheimtu-kirkjunnar, heldur einungis misviturt fólk á launum frá sveltum og sviknum skattborgurum. Margt af kirkjunnar starfsfólki er ágætis manneskjur, en verkin þeirra eru ekki skilyrðislaus kærleiksverk. Þar er stóra meinið í kirkjunni.

Ásatrúin er hreinasta trúin.

Það þarf að koma restinni af mér fyrir einhversstaðar, þegar jarðlífs-ljósið fjarar út, og mér finnst að ríkið/lífeyrissjóðirnir eigi að standa straum af þeim kostnaði. Og mér hugnast ekki annað en að öskunni af mér verði dreift í hafið. Það kostar eitthvað, en ekki of mikið. Maður á að lifa lífinu meðan maður er lifandi á sinn eigin hátt :)  Þegar það er búið, er ekki nauðsynlegt að vera með eitthvað kostnaðarsamt sýndar-leikrit.

Þetta er einungis mín skoðun á þessu umdeilda kirkjumáli, og ég virði ólíkar skoðanir annarra, ef þær eru réttlátar fyrir ólíka heildina.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.9.2012 kl. 14:00

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka inniltið ykkar ekkert okkar á sömu skoðun og við það stendur,en ég virði þær bara/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 7.9.2012 kl. 17:28

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Þá erum við sammála um að vera ósamála Halli minn, og það er leið friðar og virðingar fyrir ólíkum skoðunum. Þannig virkar einmitt skilyrðislausi náungakærleikurinn :)

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.9.2012 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband