Birkir Jón hættir á þingi ///Þá koma als konar sögur um það,segist hætta af persónulegum aðstæðum,virðum það!!!

Birkir Jón hættir á þingi Innlent | mbl.is | 22.9.2012 | 13:09 Birkir Jón Jónsson, varaformaður FramsóSigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birkir Jón Jónsson.knarflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir þetta kjörtímabil af persónulegum ástæðum og muni ekki sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður Framsóknarflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, sækist nú eftir efsta sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. en Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í kjördæminu, lýsti því yfir í vikunni að hann sæktist eftir því sæti.

Sigmundur Davíð situr nú á Alþingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. Þetta kemur fram í yfirlýsingum, sem þeir Birkir Jón og Sigmundur Davíð sendu frá sér í dag. Þær eru eftirfarandi: Yfirlýsing frá Birki Jóni Jónssyni:

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi þingsetu eftir þetta kjörtímabil af persónulegum ástæðum og mun ekki sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður Framsóknarflokksins. Ég hef á sl. 15 árum helgað líf mitt stjórnmálum og á þessum tímapunkti hef ég ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum

. Ég vil þakka framsóknarfólki um allt land frábært samstarf síðustu ár og er ákaflega þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt sem varaformanni Framsóknarflokksins og oddvita í Norðausturkjördæmi. Undanfarnar vikur hef ég hvatt Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins, til að bjóða sig fram í kjördæminu.

Um leið og ég þakka Sigmundi gott og árangursríkt samstarf fagna ég því að hann skuli vilja bjóða fram krafta sína. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins Yfirlýsing frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni: Um leið og ég þakka Birki Jóni fyrir gott og ánægjulegt samstarf undanfarin þrjú ár óska ég honum alls hins besta á þeirri braut sem hann hefur nú kosið. Samskipti okkar Birkis hafa frá upphafi verið frábær.

Á sínum tíma, þegar ég hóf þátttöku í stjórnmálum, fyrir áeggjan fólks í Norðausturkjördæmi, bauðst Birkir Jón til þess að fyrra bragði að stíga til hliðar þegar hart var lagt að mér að bjóða mig fram fyrir kjördæmið.

Ég afþakkaði það að sinni og lýsti því yfir að ég myndi byrja á því að bjóða mig fram í Reykjavík. En nú þegar Birkir Jón hverfur á braut hyggst ég sækjast eftir því að vera í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi og taka þátt í baráttunni fyrir því að flokkurinn endurheimti stöðu sína sem stærsti flokkur kjördæmisins.//////////samsæriskenningar láta ekki á sér standa þarna!! ein og alltaf ef einhver fer og hættir af persónulegum ástæðum!! en ég bara þakka þessum ágæta Alþingismanni hans góður ræður og framsögu yfirleit alltaf,og menn munu sakna hans ,það geri ég allavega/Halli gamli


mbl.is Birkir Jón hættir á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Framsókn er ekki öðruvísi en aðrir stjórnmálaflokar, litaðir af lygi og svikum og þjófnaði.

Þráinn (IP-tala skráð) 23.9.2012 kl. 02:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband