Ekki bara tölfræði heldur fólk////Er mönnum bara sjalfrátt þarna????

Ekki bFarið er í fjölmörg sjúkraflug á hverju ári.ara tölfræði heldur fólk Innlent | mbl.is | 26.9.2012 | 11:25 „Á síðasta ári voru a.m.k. tvö tilfelli þar sem það var aðeins mínútuspursmál hvort sjúklingur hefði það af. Einn lenti í hjartastoppi þegar verið var að rúlla honum inn á skurðstofu á Landspítalanum

. Ef flugvélin hefði lent í Keflavík þá hefði þetta fólk trúlega ekki lifað.“ [...] Þetta er ekki bara tölfræði heldur fólk.” Þetta er haft eftir lækni á Akureyri í nýrri skýrslu KPMG um áhrif flutnings innanlandsflugs frá Reykjavík til Keflavíkur. Í skýrslunni kemur fram að kostnaður við sjúkraflug myndi aukast við flutninginn og öryggi sjúklinga minnka. Landspítali háskólasjúkrahús (LSH) fer með ýmsa sérhæfða þjónustu sem af hagkvæmni- og kostnaðarsjónarmiðum er illa hægt að réttlæta að sé byggð upp á mörgum stöðum á landinu.

Svo þetta fyrirkomulag gangi upp og íbúar landsbyggðarinnar njóti þjónustunnar til jafns við íbúa höfuðborgarsvæðisins verða greiðar flugsamgöngur að vera til staðar. Þannig er sjúkraflug í dag afskaplega mikilvægur öryggisþáttur fyrir íbúa landsbyggðarinnar. 460 sjúkraflug á ári Fjöldi sjúkraflutninga í sjúkraflugi hefur farið vaxandi á undanförunum tíu árum og eru að meðaltali um 460 flug á ári á undanförnum fimm árum og 487 sjúklingar á ári á sama tíma. Árið 2011 voru yfir 500 sjúklingar fluttir með sjúkraflugi.

Í rúmum helmingi tilfella fara læknar með í flug, en þeir fylgja sjúklingum í öllum forgangsflugum. Læknir sem fylgir sjúklingi í forgangsflugi, fylgir honum ekki bara í fluginu sjálfu því í nær öllum tilfellum verður hann að fylgja sjúklingi þangað til hann kemst í hendur annars læknis.

Ef innanlandsflug flyst til Keflavíkur þyrfti hann því að fylgja sjúklingi frá Keflavík til Reykjavíkur og fara síðan sömu leið til baka en flugvélin biði á meðan. Það bindur flugvél, flugmenn, lækni og sjúkraflutningamann í allt að tvær klukkustundir aukalega frá því sem nú er, segir í skýrslunni sem KPMG vann fyrir sex sveitarfélög á landsbyggðinni

. Ef Reykjavíkurflugvelli verður lokað og innanlandsflug fært til Keflavíkur mætti færa rök fyrir því að byggja ýmiskonar sérhæfða þjónustu upp utan höfuðborgarsvæðisins, ýmist nær flugvellinum í Keflavík eða á landsbyggðinni.

T.d. vaknar sú spurning hvort frekar ætti byggja nýtt hátæknisjúkrahús nær flugvellinum í Keflavík, þannig að það þjóni landsbyggðinni betur. Þyrla kemur ekki í stað sjúkraflugs Þyrla, jafnvel staðsett á Akureyri, gæti ekki komið í stað sjúkraflugs í núverandi mynd og kemur þar margt til: Flugvélin er hreinlega afkastameiri, þ.e. þyrla næði ekki að flytja 500 sjúklinga á ári.

Þyrla hefur minni flugdrægni, minni flughraða og er verulega háð því að hægt sé að fljúga sjónflug. Því er hætta á að mismunandi veðurlag sunnan og norðan heiða myndi draga veruleg úr notagildi þyrlunnar, segir í skýrslu KPMG.

Ef innanlandsflug flyst frá Reykjavík til Keflavíkur án þess að til komi breytingar á uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á landinu eða tilfærsla hennar mun það hafa tvær megin afleiðingar í för með sér: Kostnaður við að sækja heilbrigðisþjónustu mun aukast fyrir íbúa landsbyggðarinnar sem nemur ferðalaginu frá Keflavík til Reykjavíkur og öllu því sem það felur í sér.

Heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni er í raun gerð verri þar sem landsbyggðin færist fjær nauðsynlegri bráðaþjónustu sem og annarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, samkvæmt skýrslu KPMG./////Allan þetta ferli verður að meta aftur frá A-Ö ekki spurning !!! það verður að stunda þetta sjúkarflug ekki spurning!!!! og stöðu Landspítala stærð og ok hann getur verði þarna í hvosinni í mátulegri stærð,byggja bara á lóðinni og hækka bygginguna um nokkrar hæðir,alt mál og bílastæðin fyrir neðan gömlu Hringbrautina í tveim hæðum,svo nokkur fyrir fattlaða og ílla gangandi við spítalan,þetta er ekkert vandamál og sparar milljarða,svo auðvitað með sjúkarflugið þarna einnig við næsta nágrenni og þyrlupallur við á þaki spítalans,svo og hægt að kaupa öll tæki og manna þetta fyrir helming fjársins,eða 25 milljarða,þetta segir sig sjálft að við eigum bara að kósa um þetta öll!!!! í næstu kosningum ekki spurning!!! og mikið fleira,það er af nógu að taka til að kjosa um!!!!/Halli gamli


mbl.is Ekki bara tölfræði heldur fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já mér datt einmitt þessi setning í hug við lestur þessara fréttar, er mönnum sjálfrátt í því sem þeir eru að gera...

Það er grafið undan hverjum steini af Ríkisstjórninni sem veit greinilega ekkert sjálf hvert hún er að stefna annað en í ESB...

Ef þetta er það sem koma skal vegna inngöngu í ESB þá vil ég að allar aðgerðir varðandi inngönguferlið í ESB verði stoppaðar áður en lengra er haldið...

Það liggur ljóst að meirihluti Þjóðarinnar er ekki á leiðinni þar inn svo áður en lengra er haldið í eyðileggingu og sundrung hér á landi vegna ESB þá er lágmark að Þjóðin fái Ríkisstjórn sem er samstíga meirihluta Þjóðarinnar Halli...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.9.2012 kl. 13:36

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mikið erum við bara oft smmála vinkona/þakka inlitið/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 26.9.2012 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband