Ögmundur stefnir á efsta sætið///Gamli kommin vill halda sjó!!!!!!

Ögmundur stefnir á efsta sætið Innlent | mbl.is | 4.11.2012 | 12:08 Ögmundur Jónasson gefur kost á sér 
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra1 sæti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi. Ögmundur hefur setið á þingi frá árinu1995.

Hann tók við embætti heilbrigðisráðherra í febrúar 2009 en sagði af sér vegna ágreinings í Icesave málinu síðar sama haust.

Ögmundur tók að nýju sæti í ríkisstjórn í september 2010, sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra, sem síðar varð að embætti innanríkisráðherra, samkvæmt fréttatilkynningu frá Ögmundi. „Alla mína tíð í stjórnmála- og félagsmálabaráttu hef ég lagt áherslu á jöfnuð.

Bæði vegna þess að í honum felst réttlæti og einnig vegna hins að jafnaðarsamfélag er kröftugra en samfélag ójafnaðar og betur til þess falið að skapa verðmæti.

Á samdráttartímum undangenginna ára hef ég talið brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar að standa vörð um innviði samfélagsins og auðlindir þjóðarinnar.

Ég hef beitt mér fyrir skýrri forgangsröðun hvað þetta varðar,“ segir Ögmundur. Sem innanríkisráðherra hefur Ögmundur lagt ríka áherslu á að efla veg mannréttindamála. Þannig hefur í ráðherratíð hans farið fram ítarleg umræða um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu, ráðist hefur verið í vitundarvakningu um kynferðisofbeldi gegn börnum og lögum um miska- og skaðabótagreiðslur til þolenda ofbeldis hefur verið breytt til hins betra.

Tryggðar hafa verið fjárveitingar til baráttu lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Ýmsar umbætur eru í farvatninu á sviði réttarfarsmála, málefna útlendinga og í fangelsismálum rofar nú til með byggingu nýs fangelsis.

Rafræm þjónusta og beint lýðræði eru í brennidepli og lög um aukið vægi persónukjörs væntanleg. Þá vinnur Ögmundur að betri lagaumgjörð um happdrættismál og eignarhald á landi.

Í forgang hefur verið sett rannsókn á meintum efnahagsbrotum.” „Reynt hefur verið eins og kostur er að skapa þeirri rannsókn eðlilega meðferð í dómskerfinu. Lyktir hennar er forsenda sáttar í samfélaginu. Þá vil ég leggja áherslu á að eitt mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er að standa vörð um auðlindir til lands og sjávar – og nefni ég þar vatnið sérstaklega.

Ég vinn nú að endurskoðun á lögum um eignarhald erlendra aðila á landi en ásælni peningamanna í jarðnæði minnir okkur á mikilvægi varðstöðu í þessu efni. Þá er það ein af skyldum okkar að halda í heiðri ótvíræðan vilja þjóðarinnar í auðlindamálum almennt sem fram kom í atkvæðagreiðslu á dögunum,“ segir í tilkynningu frá Ögmundi////////////Það hefðu margir haldið,að eftir allt sem þessi flokkur hefur sagt um endurnýjun í stjórnmálum,að þessir sem lengtst hafa verið þarna mundu víkja fyrir nýjum,en þessum mönnum finnst þeim þeir vera það,samber Pútín í rússlandi!!!en þetta var nú svo að þessir menn eru löngu komnir á síðast söludag,ekki spurning,allir hafa skipst út nema V.G.og Samfylking!!!en Ögmundur sem er búin að sitja báðu megin við borðið í mörg ár bæði sem formaður BSRB og svo Alþingi er löngu komin tími á að hætta!!þetta er eiginlega þarna bara keppni um að sitja fyrir öðrum,kannski betri?allavega skárri í samvinnu við aðra stjórmálamenn og flokka!!!///Halli gamli 


mbl.is Ögmundur stefnir á efsta sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband