Gagnrýna meirihlutann harðlega//Er þett gert í samræmi fyrir samstarfmenn í R.vík??

GaFrá bæjarstjórnarfundi í Kópavogignrýna meirihlutann harðlega Innlent | mbl.is | 14.11.2012 | 6:00 Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Vinstri Grænnaog Næstbesta flokksins í Kópavogi segja að á meðan meirihlutinn tali um lækkun skatta og gjalda séu álögur auknar á barnafjölskyldur og sérkennsla skert.

Gagnrýnir minnihlutinn það að ekkert samráð hafi verið haft við hann um fjárhagsáætlunina. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá minnihlutanum í bæjarstjórn.

„Það vekur helst athygli að á sama tíma og meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks talar um lækkun skatta eru þjónustugjöld á barnafjölskyldur aukin og sérkennsla skert, byrðarnar eru fluttar af eigendum stórra fasteigna yfir á fjölskyldur með ung börn.

Jafnframt eru kynntar fyrir bæjarbúum skatta og gjaldalækkanir. Slíkar fullyrðingar eru alrangar og má hrekja með eftirfarandi staðreyndum: Vatnsskattur lækkar í prósentum úr 0,135 í 0,120 en um leið verður aukavatnsskattur hækkaður.

Gert er ráð fyrir lækkun fasteignaskatts úr 0,32% í 0,29%. En þar sem fasteignamat fyrir árið 2013 hækkar í Kópavogi um 8,3% samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands sýnir fjárhagsáætlun 107 milljóna króna tekjuaukningu í innheimtu fasteignaskatta.

Verðbólguspá fyrir næsta ár gerir ráð fyrir 4,1 verðbólgu, því ber þetta af sama brunni, verið er að framkvæma sýndarlækkanir en raunhækkanir.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur nú gengið þvert á fullyrðingar sínar um skattalækkanir í Kópavogi og hefðu þannig mátt spara stóru orðin.

Á sama tíma eru gjöld að hækka, framlög til grunn- og leikskóla fylgja ekki verðlagsþróun og lækka því hlutfallslega.

Því er hér samhliða verið að skerða þjónustu við bæjarbúa og hækka álögur. Ekkert samráð var haft við minnihlutann í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun ársins, í fyrsta sinn frá árinu 2007.

Jafnframt var ekki leitað samstarfs við stofnanir bæjarins, nefndir og ráð, slíkt ber merki um gamaldagspólitík og vart til fyrirmyndar,“ segir í fréttatilkynningu sem bæjarfulltrúar Samfylkingar, Vinstri Grænna og Næstbesta flokks rita undir: Elfur Logadóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Pétur Ólafsson.//////////Þetta er hægt að deila í mjög gamaldags !!!!eða ekki það er svo, að ef við eigum að trúa þessum flokkum tveimur V.G. og samfylkingu eru það ekki góð fordæmi i landsmalum og i henni R.vík það er svo að þessir flokkar eru bara á móti gömlub fólki og þeim sem mynna mega sín ekki spurning ,og það er ekki undalegt að þeir kvarti ef eitthvap er gert fyrir folkið sem vit er í ,það er svo að þvi vegið og engin miskunn þar!!!/Halli gamli


mbl.is Gagnrýna meirihlutann harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Það kom í huga mér að þeir kvarta undan eigin vinnubrögðum, og þessi setning í fréttinni byrðarnar eru fluttar af eigendum stórra fasteigna yfir á fjölskyldur með ung börn er skrítin vegna þess að þar er gefið í skyn að það séu bara eigendur stórra fasteigna sem fá lækkun, og byrðarnar settar eingöngu á fjölskyldur með ung börn....

Þetta er aumingjalegt væl frá þeim sem tapað hafa...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 14.11.2012 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband