Hagfræðingur ASÍ: Mikil vonbrigði//Að koma okkur ekki í ESB???

HagfDagvara hefur hækkað undanfarið.ræðingur ASÍ: Mikil vonbrigði Innlent | mbl | 28.11.2012 | 10:25 „Auðvitað eru þetta mikil vonbrigði. Verðbólgan er komin í 4,5%. Það þýðir að verið er að rýra kaupmátt heimilanna og þetta hefur líka umtalsverð áhrif á skuldir fólks,“ segir Ólafur Darri Andrason deildarstjóri hagdeildar Alþýðusambands Íslands.

um hækkun á vísitölu neysluverðs í nóvember frá fyrri mánuði. „Þetta er í efri kantinum miðað við það sem hafði verið spáð,“ segir Ólafur Darri

. „En ef horft er til þess sem er undirliggjandi, þá skýrir veik staða krónunnar hækkanirnar liðið ár að mjög stórum hluta.

Á meðan við náum engum tökum á genginu, þá er hætt við að staðan verði áfram slæm.“ Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ. Þorkell Þorkelsson Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, sem birtar voru í morgun, hækkaði vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2012 um 0,32% frá fyrra mánuði.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,5 stig og hækkaði um 0,37% frá október. Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,9% (vísitöluáhrif eru -0,17%), verð á dagvörum hækkaði um 0,8% (0,13% vísitöluáhrif) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 8,3% (0,13% vísitöluáhrif). Vísitala neysluverðs er nú 402,0 stig (maí 1988=100) og án húsnæðis er hún 383,5 stig.

Erfitt að nefna einstakar skýringar, fyrir utan krónu „Dagvaran er að hækka mest og svo er þessi mikla hækkun á flugfargjöldum.

Það er erfitt að nefna einstakar skýringar á þessu, fyrir utan stöðu krónunnar, því það virðist vera nokkuð dreift hvað það er sem hækkar.

Hvort um er að ræða innlend áhrif, eða óbein erlend áhrif; það er erfitt að segja,“ segir Ólafur Darri. Þetta gætu einnig verið markaðsaðstæður.

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Flugfargjöld hafa hækkað um 8,3% undanfarinn mánuð. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson „Annars væri fróðlegt að heyra skýringar verslana.

Eru smásalar að hækka verð sín eða eru það heildsalar?“

Á vefsíðu ASÍ segir að athyglivert sé að skoða hvaða liðir vístölunnar hafi hækkað mest síðastliðna 12 mánuði.

Búvörur án grænmetis hafa hækkað um 6,4%, grænmeti um 11,8%, aðrar innlendar matar- og drykkjarvörur um 6,6%, innfluttar mat- og drykkjarvörur án grænmetis um 7,0%, bensín um 9,0% og opinber þjónusta um 9,3%. Frétt mbl.is: Verðbólgan 4,5%/////////////////Maður skilur ekki alveg þetta tal um krónuna hjá honum!!! það er allt henni að kenna og út þarna kemur að við værum betur sett með ESB og Evruna ekki fær maður annað þarna út enda eru þarna yfirmenn litaðir Samfylgimagarmenn allir eða flestir!!er þetta hægt að reyna að fela misgjörðir þessarar Ríkisstjórnar með svona skrifum og það af hagfræðingi er ekki betra að segja bara sannleikan að Seðlabankinn er að koma okkur á hausinn algerlega ásmat ríkisstjórinn vorri,það hæfir skel kjafti ekki var svo lítill ákafi hjá Jóhönnu að ráða þennan troskista sem Bankastjóra  !!!! en að ASÍ skuli vera svona stemmt er ekki gott,er ekki gott fyrir okkur,bara slæmt og dýrt/Halli gamli


mbl.is Hagfræðingur ASÍ: Mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn V Sigurðsson

Halli gamli, stendur þú virkilega í þeirri trú að íslenska krónan sé svona ofboðslega öflugur og stöndugur gjaldmiðill ? 

Getur þú virkilega ekki séð hvað þessi vesalings gjaldmiðill er að gera fólki á Íslandi ? 

Þorsteinn V Sigurðsson, 28.11.2012 kl. 17:03

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þorsteinn V. nei það eru ekki mín orð þarna,en við þessar aðstæður undanfarandi ára hefur hún verið notuð mikið og felt aftur og aftur og við bogum mismunin!!og það er ekki búið við fjótandi gjldmiðil!!!en það er hægt að stjórna því betur mikið ekki spurng,en sjáfur vildi ég taka upp dollar fyrir mörgum árum!!en núna ekki evru,en kanatadollar er feistandi núna ef við náum okkur á srikið/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 29.11.2012 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045617

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband