Palestína verður áheyrnarríki//Bandaríkjamenn og Kanada á móti.hvar er lýðræðið''

PalesMahmoud Abbas forseti Palestínu á allsherjarþingi Sameinuðu...tína verður áheyrnarríki Erlent | AFP | 29.11.2012 | 22:21 Atkvæðagreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var að ljúka og er niðurstaðan sú að Palestína fái stöðu áheyrnarríkis. Ísrael og Bandaríkin börðust gegn ályktuninni. Mahmoud Abbas kallaði í ræðu sinni eftir því að SÞ gæfu út „fæðingarvottorð Palestínu“ líkt og gert hafi verið fyrir Ísrael 1947

Hann sagði að með atkvæðagreiðslunni stæði alþjóðasamfélagið frammi fyrir síðasta tækifærinu til að bjarga tveggja-ríkja lausninni svo nefndu. Sendiherra Ísraels gagnvart sameinuðu þjóðunum, Ron Prosor, sagði hinsvegar að ályktunin gerði ekkert til að greiða fyrir friði heldur væri afturför.

Atkvæðagreiðslan féll þannig að 138 ríki greiddu atkvæði með ályktuninni um að Palestína fái stöðu áheyrnarríkis, en 9 ríki greiddu atkvæði gegn því. Þeirra á meðal eru Bandaríkin, Ísrael og Kanada.

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á Vesturbakkanum í Palestínu þegar úrslit atkvæðagreiðslunar voru ljós. AFP „Fyrir nákvæmlega 65 árum í dag samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktun 181, sem klauf hið sögulega land Palestínu í tvennt og varð að fæðingarvottorði ríkisins Ísrael,“ sagði Abbas í ræðu sinni í New York í kvöld.

„Í dag köllum við eftir því að allsherjarþingið gefi út fæðingarvottorð sem staðfesti að ríkið Palestína sé til í raun.“ Sendiherra Ísraels sagði á móti í sinni ræðu að eina leiðin til að tryggja frið á svæðinu væri með samningum milli stríðandi aðila, en ekki á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

„Engin ályktun Sameinuðu þjóðanna getur slitið á 4.000 ára gömul tengsl Ísraelsmanna við landið Ísrael,“ sagði Prosor. Susan Rice sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum ræðir við bandarísku sendinefndina á allsherjarþinginu í kvöld.

AFP Fagnaðarlæti á Vesturbakkanum Dauðaþögn ríkti á Vesturbakkanum í Palestínu á meðan atkvæðin voru greidd í New York, en þúsundir manna höfðu safnast saman í borginni Ramallah til að fylgjast með. Þegar úrslitin urðu ljós brutust mikil fagnaðarlæti út að sögn AFP, fólk söng og hrópaði „Guð er góður“. „Ég er svo hamingjusöm, ég get ekki lýst tilfinningum mínum.

Það er eins og við séum komin fyrir endanna á myrkum göngum. Þegar Palestína hefur verið viðurkennd sem ríki getum við nú sameinast sem þjóð og um leiðtoga,“ hefur AFP eftir palestínsku konunni Laila Jaman. Hátíðahöld eru nú um allan Vesturbakkann sem og í Gasa borg.

Í Betlehem var flugeldum skotið á loft þegar niðurstaðan lá fyrir og kirkjubjöllur hringdu á miðnætti. Bandaríkjamenn uggandi Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, hvatti bæði Ísraels- og Palestínumenn eftir atkvæðagreiðsluna til að halda friðarviðræðum áfram og varaði við einhliða aðgerðum.

Á vef BBC er auk þess haft eftir Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna að atkvæðagreiðslan sé óheppileg og vinni gegn markmiðum sínum með því að setja fleiri hindranir á leiðina til friðar.///////////////Það er mjög svo skrítið að þessar þjóðir sem tala mikið um lýðræðið,skuli greiða atkvæði á móti áheyrnafulltrúa þeirra Palestínumanna inn í Sameiniðuþjóðirnar!! ég hefi  aftast verið sammála B.N.A. í mörgu!en þarna als ekki og Kanada einnig,þetta er ekki gott og ber að skoða vel,við sem erum hlynt þessu bara skiljum ekki þessa aðför að þjóð sem á í vök að verjast,sem slík/Halli gamli 


mbl.is Palestína verður áheyrnarríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband