Enginn fundur í dag/Þessi Landspítali er orðið aukaatriði eða kjörun og starfsfólkið!!,Bara að byggja nýjan????

Enginn fBjörn Zoëga, forstjóri Landspítalans.undur í dag Innlent | mbl | 3.12.2012 | 10:25 Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að enginn fundur verði í dag á milli fulltrúa hjúkrunarfræðinga og Landspítalans um kjaramál.

„Nei, það er einhver vitleysa sem er í gangi,“ segir Björn spurður út í fundinn. Aðgerðahópur hjúkrunarfræðinga sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem boðað var til mótmæla kl. 16 í dag þegar fulltrúar samninganefnda Landspítalans og hjúkrunarfræðinga áttu að hittast á fundi, samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningunni.

Björn segir í samtali við mbl.is, að samstarfsnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafi óskað eftir fundi með sér og velferðarráðherra. Hann segir að í síðustu viku hafi menn stefnt að því að halda fundinn kl. 16 í dag. „Vegna tímaleysis ráðherra þá verður þessi fundur ekki í dag,“ segir Björn sem bætir við að fundinn verði nýr tími til að ræða málin. „Þannig að þessi fundur verður ekkert í dag og þetta er einhver misskilningur,“segir Björn, sem tekur fram að ekki liggi fyrir hvert fundarefnið eigi að vera, en hann segist gera ráð fyrir því að menn vilji ræða kjarabætur hjúkrunarfræðinga.

Hann furðar sig jafnframt á því að menn skuli vera tala um einhvern leynilegan fundarstað. „Maður verður bara hissa á því að fólk skuli láta hafa sig út í svona,“ segir hann og bætir við að allt liggi uppi á borðum í þessum efnum.

Engar kjarabætur í stofnanasamningum „Hjúkrunarfræðingar hafa gildan kjarasamning. Það hefur ekki verið endurnýjaður stofnanasamningur af því að þeir hafa ekki viljað gera það nema að fá kjarabætur. Og það hafa hingað til ekki verið neinar kjarabætur í stofnanasamningum, sem þýðir það að Landspítalinn fær engan pening frá ríkinu eða fjármálaráðuneytinu til að ganga frá þessu.

Þess vegna hefur ekki verið hægt að ganga frá stofnanasamningi,“ segir Björn. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá aðgerðahópi hjúkrunarfræðinga hafa um 190 hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum. Þeir taka aftur á móti fram að þessar tölur séu óstaðfestar.

Þeir segja að stórt hlutfall þessara hjúkrunarfræðinga séu hjúkrunarfræðingar með sérmenntun, s.s. skurðhjúkrunarfræðingar, svæfingarhjúkrunarfræðingar, gjörgæsluhjúkrunarfræðingar, barnahjúkrunarfræðingar ásamt almennum hjúkrunarfræðingum.

Spurður út í uppsagnirnar, segir Björn að eitthvað hafi verið um uppsagnir meðal hjúkrunarfræðinga fyrir síðustu helgi.

„Við erum bara að safna saman gögnum, kíkja á þetta og sjá hver málin verða og hvert framhaldið verður í samráði við ríkið, það er að segja fjármálaráðuneytið og velferðarráðuneytið,“ segir Björn sem tjáir sig ekki nánar um uppsagnirnar að svo stöddu./////////////Við skulum staldra við þessi orð segir Björn!! það er svo að þessi mál eru mikið alvarlegri en gert er í öllu, það er löngu orðið háalvarlegt,og þessi Ráðherra Guðbjartur er þarna mikið sekur ásamt Ríkisstjórnin allri!!Að vera að spila með mannslíf svona er ekkert grín,og mundi ábyggilega varðað við Íslensk lög og vel það,þessi maður Guðbjartur Velferðaráðaherra,sem verið er að hæla sem góðum og gegnum manni,og væntanlegum Formanaefni Samfylkingar,hvað meinar þessi ríkisstjórn að láta þetta draslast svona!!!Eftir höfðinu dansa limirnir og Björn starfar fyrir þá sem Forstjóri og hvað gerir hann: ekki bara það sem honum er sagt að gera!! Þetta er svo rotið að það hálfa væri nóg,það er svo á fullu verið að tala um að byggja nýjan spítalana!!Heila borg utan um hann eða virki uppá 60-100 milljarða,er nokkur vit í þessu við erum ekki spurð, bara vaðið á súðum og engin peningur til!!! að kaupa tæki núna sem þarf strax ekki seinna,og svo þetta mál með hjúkrunarkonur missa þær allar fyrir rest,svo og Læknana!!!/Nei hingað og ekki lengra takið þetta allt upp aftur og endurskoðið/Halli gamli


mbl.is Enginn fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband