Umgengni skilgreind með breyttum hætti/Ný barnalög sennilega umdeilt!!

UmgengMynd 644532ni skilgreind með breyttum hætti Innlent | mbl.is | 2.1.2013 | 12:18 Um áramót tóku gildi breytingar á barnalögum. Breytingarnar snúa einkum að ákvæðum um forsjá og umgengni.

Með lögunum er umgengni skilgreind með breyttum hætti þ.e. að umgengni taki hvort tveggja til samveru og annarra samskipta auk þess sem hægt verður að ákveða umgengni barns við aðra en foreldra í fleiri tilvikum en áður.

Innanríkisráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem vakin er athygli helstu nýmælum sem lögin fela í sér.

Bent er á því að um þau mál sem nú þegar eru til meðferðar hjá sýslumönnum og er ólokið fer samkvæmt eldri lögum.

Sama á við um dómsmál sem þingfest voru fyrir gildistöku laganna. Nýr kafli um réttindi barns Lögfestur hefur verið nýr upphafskafli barnalaga sem hefur að geyma almennt ákvæði sem tekur mið af meginreglum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Í honum er meðal annars mælt fyrir um rétt barns á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Hlutverk foreldra Í lögunum er að finna ýmis ákvæði sem afmarka frekar hlutverk foreldra.

Þannig er t.d. inntak sameiginlegrar forsjár skilgreint nánar en verið hefur.

Forsjá stjúp- og sambúðarforeldra Með lögunum er afnumið það fyrirkomulag að stjúp- og sambúðarforeldrar fái sjálfkrafa forsjá stjúpbarns við tilteknar aðstæður.

Þess í stað getur stjúp- eða sambúðarforeldri og kynforeldri sem fer eitt með forsjá nú samið um að forsjá barns verði sameiginleg og verður sýslumaður að staðfesta slíkan samning.

Heimild dómara til að dæma sameiginlega forsjá Lögfest hefur verið heimild dómara til að ákveða að forsjá barns skuli vera sameiginleg þrátt fyrir andstöðu annars foreldris.

Aðeins má dæma sameiginlega forsjá ef dómari telur þær aðstæður fyrir hendi að sameiginleg forsjá geti þjónað hagsmunum barnsins.

Heimild til að dæma hjá hvoru foreldri barn skuli eiga lögheimili Ef dómari dæmir sameiginlega forsjá ber honum jafnframt að kveða á um hjá hvoru foreldra barn skuli eiga lögheimili.

Foreldrar sem fara saman með forsjá barns geta líka höfðað sérstakt lögheimilismál ef ágreiningur rís um hvar barnið skuli eiga lögheimili.

Samningar foreldra um lögheimili Foreldrar geta samið um að lögheimili barns flytjist frá öðru foreldri til hins eins og verið hefur en eftir gildistöku laganna öðlast slíkir samningar gildi við staðfestingu sýslumanns.

Sjónarmið í málum um forsjá Í lögunum er nú tekið fram með skýrari hætti en verið hefur til hvaða sjónarmiða dómari eigi að líta við ákvörðun um forsjá barns og segir að hann eigi meðal annars að líta til hæfis foreldra, stöðugleika í lífi barns, tengsla barns við báða foreldra, skyldu þeirra til að tryggja rétt barnsins til umgengni, hættu á að barnið, foreldri eða aðrir á heimili barnsins hafi orðið eða verði fyrir ofbeldi og vilja barns að teknu tilliti til aldurs og þroska þess.

Ný ákvæði um umgengnisrétt Með lögunum er umgengni skilgreind með breyttum hætti þ.e. að umgengni taki hvort tveggja til samveru og annarra samskipta auk þess sem hægt verður að ákveða umgengni barns við aðra en foreldra í fleiri tilvikum en áður.

Þá er tekið fram að sýslumaður eigi við úrlausn umgengnismáls að líta til tiltekinna sjónarmiða, meðal annars tengsla barns við báða foreldra, aldurs barns, stöðugleika í lífi barns, búsetu foreldra og vilja barns að teknu tilliti til aldurs og þroska.

Í lögunum er að finna mikilvægt nýmæli þess efnis að sýslumaður geti úrskurðað til bráðabirgða um umgengni. Sýslumanni hefur enn fremur verið veitt heimild til þess að ákveða með úrskurði að óheimilt sé, meðan umgengnismál er til meðferðar, að fara með barn úr landi.

Sérfræðingar í málefnum barna Með lögunum er afnumið það fyrirkomulag að barnaverndarnefndir veiti umsagnir í umgengnismálum og hafi eftirlit með umgengni.

Þess í stað getur sýslumaður nú leitað til sérfræðinga í málefnum barna, þ.e. fagaðila sem hafa nauðsynlega þekkingu á þörfum barna og stöðu foreldra.

Málsmeðferð vegna umgengnistálmana Með lögunum eru skýrð frekar ákvæði núgildandi laga um framkvæmd fullnustugerða í málum vegna umgengnistálmana auk þess sem dómara er veitt heimild til þess að ákveða að umgengni á vissu tímabili verði komið á með aðfarargerð.

Ráðgjöf og sáttameðferð Síðast en ekki síst ber að nefna að með lögunum eru gerðar mikilvægar breytingar á málsmeðferð hjá sýslumönnum.

Sýslumaður getur nú boðið aðilum tiltekinna ágreiningsmála ráðgjöf sérfræðinga í málefnum barna. Markmið ráðgjafar er fyrst og fremst að foreldrar fái leiðbeiningar sem geta hjálpað þeim að meta hvaða lausn barni er fyrir bestu.

Auk ákvæða um sérfræðiráðgjöf er að finna í lögunum ákvæði um skyldubundna sáttameðferð en markmiðið með sáttameðferðinni er að hjálpa foreldrum að gera samning um þá lausn máls sem barni er fyrir bestu.

Ráðherra mun setja reglur um ráðgjöf og sáttameðferð, hæfi sérfræðinga og sáttamanna og inntak og framkvæmd ráðgjafar og sáttameðferðar./////////////Þetta er svo að manni finnst þetta í fljótu bragði mjög umdeilt !!!!en það er kannski ekki þegar vel er lesið,en auðvitað eru þetta mikið lagsmíð og kemur manni á óvart margt,þetta er eiginlega laga smið!!! sem kenna verður í skólum landsins,manni finnst af þessu sósíals lykt mikil og boð og bönn fest í sessi,en það er samt ennþá ráðherraræði þarna það sem við viljum ekki,en það er eins víst að lögfræðólkið einnig og jafnvel við gamlingjar,sem pössum oft blessuð börnin,En þetta er komið í lög lesið' þetta vel og gefið út skoðanir voru þið nokkur spurð????/Halli gamli


mbl.is Umgengni skilgreind með breyttum hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband