Fær ekki svör um kostnað við Hörpu/Borgarstjóri er að leika heyrnardaufa???

Fær eTónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa.kki svör um kostnað við Hörpu Innlent | mbl.is | 5.2.2013 | 21:31 Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir líklegt að Jón Gnarr, borgarstjóri, misskilji spurningu hans um kostnað við Hörpu viljandi í þeim tilgangi að koma sér undan því að upplýsa almenning um heildarbyggingarkostnað.

„Af hverju fá skattgreiðendur ekki að vita það?“ spyr Kjartan. Málið var tekið fyrir á fundi borgarstjórnar í kvöld og lagði Kjartan þá fram fyrirspurn sína að nýju, en hann lagði hana áður fram 4. september sl.

„ Í fyrirspurninni var m.a. spurt um heildarbyggingarkostnað við Hörpu og tengd mannvirki á núverandi verðlagi og óskað eftir sundurliðuðum upplýsingum um áfallinn kostnað, s.s. vegna lóðakaupa, jarðvinnu, sjófyllingar, byggingar, glerhjúps, gatnatenginga, torggerðar, lóðafrágangs, bílastæðahúss o.s.frv. Kjartan Magnússon í ræðustóli. mbl.is/Ómar Þrátt fyrir að spurningin sé orðuð með skýrum hætti virðist borgarstjóri einhverra hluta vegna hafa misskilið hana því í svari hans er einungis gert grein fyrir þeim byggingarkostnaði, sem til hefur fallið eftir yfirtöku verkefnisins árið 2009,“ segir Kjartan.

Afar sérstakt að ítreka þurfi fyrirspurn Hann segir að í svarinu sem hann fékk frá borgarstjóra 15. janúar sl. um kostnað við húsið hafi komið fram að borgarstjóri sjái ekkert athugavert við að nokkrir af æðstu embættismönnum borgarinnar, sem eru undir beinni stjórn hans, neituðu Kjartani ítrekað um skýrslu KPMG um rekstur þess.

„Afar sérstakt er að kjörinn fulltrúi þurfi að ítreka slíka spurningu, sem var orðuð mjög skýrt. Finnst mér líklegt að menn hafi misskilið spurninguna viljandi í þeim tilgangi að koma sér undan því að upplýsa almenning um hver heildarbyggingarkostnaður Hörpu er í raun og veru.

“ Kjartan óskaði eftir því að úr þessu verði bætt og skýr grein gerð fyrir öllum byggingarkostnaði við húsið frá upphafi hverju nafni sem hann nefnist. Fyrirspurn Kjartans: „1. Hver er heildarbyggingarkostnaður við Hörpu og tengd mannvirki á núverandi verðlagi?

Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um áfallinn kostnað, s.s. vegna lóðakaupa, jarðvinnu, sjófyllingar, byggingar, glerhjúps, gatnatenginga, torggerðar, lóðafrágangs, bílastæðahúss o.s.frv.

Þá er óskað eftir yfirliti yfir þær framkvæmdir sem gerðar voru/////////////////Þá er það klárt að Borgarstjóri er ekki i lagi!!!!! als ekki ,að geta ekki svarað fulltrúum löglega kjörnum svona einfaldra spurninga sem varða okkur Borgarana miklu á bókina lært með þennan mann ,fór í Breiðholtið með pomp og prakt ætlaði að vara þar í viku var áeinum fundi kom á nokkra staði,en fór svo á fund í Grafavog og það úthrópaður af mistökum Ráðhúsið og sagðist ekki þola þetta einelti,fór svo erlendis í einhverja ,áskorun um eitthvað sem enginn skilur//ER þetta hægt nei seigir maður hiklaust!!!!!/Halli gamli


mbl.is Fær ekki svör um kostnað við Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband